
Ók undir áhrifum áfengis með barn í bílnum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann er ók undir áhrifum áfengis með barn í bílnum.
Segir í morgunpósti lögreglunnar að ökumaðurinn hafi verið látinn laus eftir blóðsýnatöku og einnig að barnavernd hafi gert ráðstafanir vegna málsins.
Þá tókst lögreglunni tókst eigi að hafa hendur í hári veiðiþjófs er tilkynnt var um undir Gullinbrú í Grafarvogi. Hann var farinn er lögreglu bar að garði.
Lögreglan hafði eftirlit með ástandi og réttindum í nótt og alls voru fjórtán ökumenn kærðir fyrir aka undir áhrifum áfengis eða annarra eiturlyfja.
Einn ökumaður á von á sekt fyrir að aka á nagladekkjum en óheimilt er að aka á nagladekkjum frá og með 15. apríl.
Komment