1
Innlent

Bílstjórinn umdeildi í Lækjargötu opnar sig um atvik gærdagsins

2
Innlent

Daniel tekinn með eiturlyf og vopn við Perluna

3
Peningar

Tíu spurningar sem Jón Ásgeir hefur ekki svarað

4
Innlent

Spennuþrungið andrúmsloft á mótmælunum

5
Fólk

Íþróttaeinbýli í Vesturbæ sett á sölu

6
Innlent

Íslenskur krakkadrykkur veldur áhyggjum

7
Heimur

Lafði Patricia Routledge lést í svefni

8
Innlent

Segir það ekki skipta máli hvort hún sé hrædd eða ekki

9
Landið

Karlmaður dæmdur í fangelsi fyrir skjalafals

10
Fólk

Jón Steinar dásamar „A Star Is Born“

Til baka

Unglingsstelpa handtekin á leið í próf

Veikri konu í hjólastól og dóttur hennar vísað frá landi.

Flensborg
FlensborgFarah var handtekin á leið í próf.
Mynd: flensborg.is

Sómölskum mæðgum hefur nú verið vísað frá Íslandi eftir að hafa verið hér síðan 2023. Móðirin, Zahra Hussein er veik og í hjólastól og dóttirin, hin 17 ára Farah Mohamed talar orðið íslensku og stundaði nám í Flensborgarskóla í Hafnarfirði. Samkvæmt heimildum Mannlífs var hún handtekin á leið í próf í gærmorgun og færð ásamt móður sinni á hótel í Hafnarfirði.

2a2d03c9-aa7e-45d2-9678-ef7d3c142999
FarahFarah var í skátunum.
Mynd: Aðsend

Skátavinir, samnemendur og kennarar stúlkunnar mættu fyrir utan hótelið í gærkvöldi til að mótmæla brottvísuninni. Var mægðunum bannað að yfirgefa hótelherbergið og gat því Farah ekki kvatt vini sína. Söng hópurinn fyrir mæðgurnar fyrir utan hótelherbergið.

Mótmæli
Mótmælt við hóteliðVinir Farah mættu fyrir utan hótelið.
Mynd: Aðsend

Samkvæmt Samstöðinni er mál mæðgnanna flókið en þær komu hingað til lands árið 2023 en áður hafði eiginmaður Zöhru og faðir Farah fengið vernd hér á landi. Áður höfðu mæðgurnar haft aðkomu á Kýpur og fengið þar mannúðarvernd. Í ljós kom síðan að eiginmaðurinn hafði ekki verið alveg heiðarlegur í sinni umsókn og því var dvalarleyfi hans rift og hann sendur úr landi. Samkvæmt Samstöðinni er síðast vitað af honum í Eþíópíu, þar sem hann var kvaddur í herinn en mæðgurnar hafa ekki heyrt frá honum í nokkra mánuði.

d3511c68-93af-45e1-8a33-c3a0250a5be4
Farah og forsetinn fyrrverandiFarah með Guðna Th. Jóhannessyni.
Mynd: Aðsend

Eins og áður kemur fram er Zahra veik og bundin við hjólastól og reiðir sig aðgjörlega á dóttur sína í daglegum athöfnum en þeim var í morgum vísað úr landi.

Mæðgurnar
Zahra og FarahMæðgunum hefur verið vísað úr landi.

Mannlíf heyrði í Jóni Sigurðssyni, lögmanni mæðgnanna, sem segir andlega líðan þeirra hræðilega.

„Þeim líður hræðilega. Stelpan er í algjöru áfalli. En nú er staðan sú að þeim hefur verið brottvísað, þær eru farnar úr landi. Þannig að allt sem ég hef verið að reyna að gera fyrir þær, opna þetta aftur og svona, það í raun fellur um sig því öllu verður vísað frá.“

Aðspurður hvort það sé þá engin von, neitar Jón því. „Nei, raunverulega ekki. Það eru engin sérstök úrræði til, til þess að berjast gegn þessu núna.“

Jón segir að dóttirin, Farah, hafi verið búin að koma sér vel inn í samfélagið á Íslandi.
„Hún var búin að aðlagast mjög vel, talaði fína íslensku og frábæra ensku og búin að mynda mjög góðar tengingar.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Jón Steinar dásamar „A Star Is Born“
Fólk

Jón Steinar dásamar „A Star Is Born“

Dæmdi eitt sinn glæpamenn í fangelsi en dæmir kvikmyndir í dag
Daniel tekinn með eiturlyf og vopn við Perluna
Innlent

Daniel tekinn með eiturlyf og vopn við Perluna

Tíu spurningar sem Jón Ásgeir hefur ekki svarað
Peningar

Tíu spurningar sem Jón Ásgeir hefur ekki svarað

Íslenskur krakkadrykkur veldur áhyggjum
Innlent

Íslenskur krakkadrykkur veldur áhyggjum

Bílstjórinn umdeildi í Lækjargötu opnar sig um atvik gærdagsins
Innlent

Bílstjórinn umdeildi í Lækjargötu opnar sig um atvik gærdagsins

Spennuþrungið andrúmsloft á mótmælunum
Myndir
Innlent

Spennuþrungið andrúmsloft á mótmælunum

Hnífstunguárás tilkynnt til lögreglu í nótt
Innlent

Hnífstunguárás tilkynnt til lögreglu í nótt

Segir það ekki skipta máli hvort hún sé hrædd eða ekki
Innlent

Segir það ekki skipta máli hvort hún sé hrædd eða ekki

Lafði Patricia Routledge lést í svefni
Heimur

Lafði Patricia Routledge lést í svefni

Íþróttaeinbýli í Vesturbæ sett á sölu
Fólk

Íþróttaeinbýli í Vesturbæ sett á sölu

Karlmaður dæmdur í fangelsi fyrir skjalafals
Landið

Karlmaður dæmdur í fangelsi fyrir skjalafals

Innlent

Daniel tekinn með eiturlyf og vopn við Perluna
Innlent

Daniel tekinn með eiturlyf og vopn við Perluna

Maríhúana, LSD og amfetamín meðal þeirra efna sem fundust
Segir það ekki skipta máli hvort hún sé hrædd eða ekki
Innlent

Segir það ekki skipta máli hvort hún sé hrædd eða ekki

Íslenskur krakkadrykkur veldur áhyggjum
Innlent

Íslenskur krakkadrykkur veldur áhyggjum

Bílstjórinn umdeildi í Lækjargötu opnar sig um atvik gærdagsins
Innlent

Bílstjórinn umdeildi í Lækjargötu opnar sig um atvik gærdagsins

Spennuþrungið andrúmsloft á mótmælunum
Myndir
Innlent

Spennuþrungið andrúmsloft á mótmælunum

Hnífstunguárás tilkynnt til lögreglu í nótt
Innlent

Hnífstunguárás tilkynnt til lögreglu í nótt

Loka auglýsingu