
Félagsmenn Verkalýðs Akraness sem starfa í álveri Norðuráls á Grundartanga munu greiða atkvæði um verkfall á næstunni ef allt gengur eftir en undirbúningur fyrir slíkt er í vinnslu. Greint er frá þessu í tilkynningu frá félaginu.
Samningar starfsmanna runnu út um áramótin og samkvæmt verkalýðsfélaginu er ekkert nýtt að frétta af launadeilunni. Segir félagið að ekki sé mikill samningsvilji til staðar hjá álverinu. Þá er bent á það að það séu 15 mánuðir séu frá því starfsmenn fengu launahækkun en að verðlag og húsnæðisverð og afborganir hafi hækkað síðan þá.
„Á þessari forsendu er ekkert annað í stöðunni en að nýta fyrsta tækifæri til þess að kjósa um vinnustöðvun enda engin teikn á lofti um vilja fyrirtækisins til þess að hefja kröftuga vinnu við að ganga frá nýjum kjarasamningi. Kjarasamningi sem tekur tillit til eðli þessarar starfsemi enda er vinna í stóriðjum erfið, krefjandi og oft á tíðum hættuleg. Með öðrum orðum, þetta eru ekki hefðbundin verkamannastörf. Þetta er öflugt útflutningsfyrirtæki sem hefur skilað góðri afkomu í gegnum tíðina og því mikilvægt að fyrirtæki af þessari stærðargráðu sýni vilja til að ganga hratt, vel og örugglega frá launabreytingum til handa sínu starfsfólki. Enda eru fyrirtæki ekkert án öflugra starfsmanna. Að þessu sögðu tilkynnti formaður á fundi hjá ríkissáttasemjara í gær að VLFA muni hefja undirbúning að kosningu um verkfall og stefnir félagið á að hefja kosningu á fimmtudaginn í næstu viku enda engin önnur staða á vellinum en að sýna fulla staðfestu í að knýja fram sanngjarnan og réttlátan kjarasamning,“ segir í tilkynningunni.
Komment