
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra Íslands minntist móður sinnar á Facebook en hún lést í morgun.
Móðir Þorgerðar Katrínar hét Katrín Arason og var fædd 12. desember árið 1926.
„Í morgunsárið kvaddi mamma og hélt til fundar við pabba og Kaju. Ég veit að það verða langþráðir endurfundir og ekki verður leiðinlegt á þeim bænum. Svo munu þau fylgjast vel með öllu sínu fólki. Og skála kannski i koníaki.“ Þannig hefst falleg færsla frá Þorgerði Katrínu sem birtist á Facebook rétt í þessu. Og hún heldur áfram:
„Við Kaja ræddum það gjarnan hversu lánsamar við vorum með foreldra. Ástrík, umvefjandi, hvetjandi. Voru ófeimin alla tíð við að segja að þau elskuðu okkur.“
Þorgerður Katrín segir móður sína hafa verið fjölskyldunni stoð og stytta og verið hvetjandi.
„Mamma tók utan um okkur öll. Með mestu seigluna og styrkinn þegar á þurfti að halda. Var okkar stoð og stytta. Sagði okkur alltaf að halda áfram. Vera sjálfstæðar. Sýndi umburðarlyndi og hló að bullinu í okkur. Svo var það þessi endalausa hlýja, eiginlega áþreifanleg ást. Og það sem hún var stolt af barnabörnunum sínum og öllu því sem þau tóku sér fyrir hendur.“
Lokaorð Þorgerðar Katrínar eru afar falleg en hún segist hafa skriðið upp í til móður sinnar í morgun, líkt og hún hafi gert allt sitt líf:
„Ég skreið alla tíð upp í til mömmu. Er ófeimin að viðurkenna það. Það gerði ég líka í morgun og hélt utan um hana eins og hún gerði allt mitt líf.
Ég sakna þeirra allra, litlu fjölskyldunnar minnar, en mikið er undurgott að vita af þeim saman. Við hin höldum að sjálfsögðu áfram. Mamma hefði ekki viljað hafa það öðruvísi.
Starfsfólki Hrafnistu á Ölduhrauni vil ég þakka fyrir mikla umhyggju, greiðasemi og fallegt utanumhald. Það hefur verið ómetanlegt.“
Komment