
Matreiðslumeistarinn Sveinn Kjartansson segir í opinskáu viðtali sem birt var á RÚV að hann hafi vitað við kynþroskaaldur að hann væri samkynhneigður
„Ég kom til Reykjavíkur 18 ára og þá var hommi í næstu götu sem var rosalega næs, hann tók mig undir sinn verndarvæng og sagði hinum strákunum. Þá var til samfélag en ekki fyrirmyndir í sjónvarpi. Samkynhneigður maður, þetta var eitthvað til að skammast sín fyrir,“ sagði hann í þættinum Hinsegin dagar, vikur, mánuðir og ár.
Í þættinum rifjar hann upp þegar hann fékk þær fréttir að hann væri smitaður af HIV en það gerðist fyrir aldamót. „Þetta var sönnun þess að við ættum ekki skilið að vera til og það væri verið að refsa okkur fyrir eitthvað sem við hefðum gert syndsamlega. Því fylgdi gríðarleg skömm og það var tafl fyrir mann að vera til, halda sjálfsvirðingu og haus og okkur var ráðlagt að tala ekki um þetta til að byrja með,“ en margt samkynhneigt fólk hefur í gegnum áratugina upplifað skömm og fordóma vegna kynhneigðar sinnar.

Honum var sagt að hann ætti eitt ár eftir ólifað. „Þetta var dauðadómur. Ég dílaði ekki við það. Líkaminn tekur yfir og deyfir þig, hugmyndafræðin að veröldin væri skárri ef þú værir ekki þarna tók yfir í smá tíma,“ segir hann. „Ég átti mjög góða að sem börðu í mig líf. Þegar lífsljósið slokknaði var það tendrað annars staðar,“ og segist hafa verið mjög heppinn þar.
Hann segist hafa beðið eftir að deyja. „Það sem gerist er að maður fer að lifa lífinu öðruvísi. Margt af því sem gerist í þessari reynslu nýtist mér gríðarlega vel í sambandi við verðmætamat, hver ég er. Að einhverju leyti hefur þessi lífsreynsla gert mig að betri manni.“
Komment