
Alls gista fjórir í fangageymslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir nóttina en alls voru 80 mál bókuð á milli 17:00 í gær til 05:00 í morgun. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar en hér má sjá nokkur dæmi um helstu verkefni næturinnar.
Lögreglan sem starfar í Austur og Vesturbæ Reykjavíkur, Seltjarnarnesi og í miðborginni, stöðvaði fimm ökumenn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Voru þeim öllum sleppt eftir hefðbundnar aðgerðir lögreglu, sem sagt flutning á lögreglustöð og sýnatöku.
Í miðbænum var sótölvaður maður í grímubúning handtekinn. Hann hafði verið að slást en við komu á lögreglustöð var hann það drukkinn að hann gat ekki valdið sjálfum sér. Var hann vistaður í fangaklefa.
Þá óskaði leigubílstjóri eftir aðstoð lögreglu þar sem farþegi hans neitaði að borga fyrir farið. Var farið með manninn á lögreglustöð en vegna ástandsins á honum var hann vistaður í fangaklefa.
Lögreglan sem sér um Kópavog og Breiðholt stöðvaði ökumann í akstri vegna gruns um að hann væri undir áhrifum fíkniefna. Reyndi maðurinn þá að ljúga að lögreglunni um að hann væri annar maður en það fór ekki betur en svo að hann á nú yfir höfði sér kæru fyrir að gefa upp rangt nafn, auk umferðalagabrotanna.
Nokkrir ökumenn voru kærðir fyrir reykspól, glæfraakstur og brot á reglugerð um gerð og búnað ökutækja.
Lögregla sem sinnir verkefnum í Grafarvogi, Mosfellsbæ og í Árbænum aðstoðaði leigubílstjóra vegna farþega sem neitaði að borga. Var málið afgreitt á vettvangi.
Þá stöðvaði sama lögregla ökumann vegna gruns um ölvun við akstur sem og akstur undir áhrifum fíkniefna. Kom þá í ljós að ökumaðurinn var einnig án ökuréttinda.

Komment