
Í gær afhenti hópurinn BDS Íslands, stjórn RÚV köku með áletrun þar sem hvatt var til þess að Ísrael verði vikið úr Eurovision 2025.
Pressan eykst enn á stjórn RÚV að krefjast þess að Ísrael verði meinuð þátttaka í Eurovision í ár, vegna þjóðarmorðsins á Palestínumönnum. Í gær var haldinn stjórnarfundur á RÚV en af því tilefni mættu meðlimir sniðgöngusamtakanna BDS Ísland upp í Efstaleiti með köku sem hópurinn hafði pantað. Á kökunni, sem var sú glæsilegasta, var hvatning til þess að Ísrael verði ekki með í Eurovision í ár. Var ætlunin að stjórnin gæddi sér á kökunni á fundinum.

BDS Ísland birti eftirfarandi texta á Facebook í dag þar sem fjallað var um gjörninginn.
„Fyrir hönd þeirra 4500 manns sem nú hafa skrifað undir undirskriftalistann til RÚV vegna Eurovision var pöntuð kaka og farið með á stjórnarfund RÚV sem haldinn var í gær, miðvikudaginn 26. mars, til að hvetja útvarpsstjóra og stjórnarmenn til dáða.
Krafan er skýr. Farið er fram á að RÚV beiti sér fyrir því við Samband evópskra sjónvarpsstöðva að:
1) Ísrael verði vikið úr Eurovision 2025
2) sniðganga Eurovision 2025 ef Ísrael fær að taka þátt
Undirskriftalistinn er ennþá galopinn fyrir fleiri undirskriftum þannig endilega hvetja öll til að skrifa undir, það er enga stund gert. Fyrir þá sem það kjósa er hægt að skrifa undir nafnlaust, það telur líka hlekkur á undirskriftalistann í athugasemdum.“

Samkvæmt upplýsingum sem hópurinn fékk frá starfsfólki RÚV, rataði kakan ekki alla leið á stjórnarfundinn en útskýringin var sú að um öryggisráðstafanir væru um að ræða.
Palestínuhreyfingin í Finnlandi hefur sömuleiðis aukið þrýsting sinn á ríkisfjölmiðilinn þar í landi, YLE en til viðbótar við þær 10.000 undirskriftir sem afhentar voru útvarpsstjóra á mánudaginn, hefur hún nú birt YLE opið bréf, sem er hið sama og sent var á RÚV á dögunum.
Komment