1
Minning

Séra Yrsa Þórðardóttir er fallin frá

2
Landið

Hjörtur dæmdur fyrir peningaþvott

3
Fólk

Bjarni Ben opnar sig um sína helstu ástríðu

4
Peningar

Mjölnir blæðir milljónum

5
Fólk

Framkvæmdastjóri Olís selur í Garðabæ

6
Innlent

Karl er fundinn

7
Innlent

Morðmál Margrétar Löf sett á dagskrá

8
Minning

Uggi Þórður Agnarsson látinn

9
Innlent

Lögreglan varar við Skattsvikurum

10
Fólk

Fangar ánægðir með Jóa Fel

Til baka

Sigursteinn Másson gagnrýnir aukinn haturspopúlisma

„Hvað varð um mennskuna og mannúðina?“

Sigursteinn Másson
Sigursteinn MássonFærsla Sigursteins hefur vakið gríðarmikla athygli
Mynd: Instagram-skjáskot

Kvikmyndagerðarmaðurinn Sigursteinn Másson gagnrýnir harðlega vaxandi áhrif hægri popúlisma og andúð á innflytjendum, flóttafólki og minnihlutahópum bæði erlendis og á Íslandi í færslu sem hann birti á Facebook í gær.

Sigursteinn bendir á að yfir hundrað þúsund manns hafi safnast saman í London til að mótmæla innflytjendastefnu breskra stjórnvalda, þar sem meðal annars Elon Musk hafi tekið til máls klæddur þjóðfánanum og með MAGA-derhúfu. Hann kallar atburðinn „súrrealískan og fáránlega súran“.

„Hver popúlistahreyfingin á fætur annarri sprettur upp og sópar til sín fylgi vestan hafs og austan í nafni andstöðu við innflytjendur, flóttafólk, múslima og transfólk,“ skrifar hann og spyr hve margir þessara stuðningsmanna hafi í raun persónulega neikvæða reynslu af þeim hópum sem þeir mótmæla.

Ísland sé ekki undanskilið þessari þróun, að hans mati. „ Hér á Íslandi er talað um tiltekt í útlendingamálum eins og það þurfi bara að sópa þessu liði einhvern veginn út í horn eða bara í burtu,“ segir hann og bendir á mikilvægi innflytjenda fyrir atvinnulíf og byggðaþróun. Hann nefnir að atvinnuþátttaka flóttafólks sé í raun meiri en þeirra sem eru fæddir hér á landi, þrátt fyrir að stjórnmálamenn tali um flóttamenn sem byrði.

Sigursteinn bendir einnig á ábyrgð Vesturlanda á neyðarástandi í ríkjum eins og Írak, Afganistan og Palestínu. Hann spyr hvort Íslendingar ætli að snúa baki við þeim sem séu í mestri neyð, ekki síst afgönskum konum.

Hann hafnar einnig rökum sem byggja á því að innflytjendur auki glæpatíðni: „ Þegar öll rök eru á þrotum er gripið til þess ráðs að kenna innflytjendum um aukna glæpatíðni. Aftur eru engin haldbær gögn eða tölfræði sem styður það. Auðvitað aukast glæpir eitthvað með auknum fjölda fólks, það segir sig sjálft, en það er helst þegar fólk hefur verið niðurlægt og jaðarsett, hefur færri tækifæri en aðrir sem að hætta er á að það fari á einhvern hátt út af sporinu.“ Því sé það óskiljanlegt að stjórnvöld ætli að draga úr fjárframlögum til íslenskukennslu fyrir útlendinga.

Að lokum gagnrýnir Sigursteinn það sem hann kallar „kristilega hægri menn“ og spyr hvort menn sjái Jesú Krist fyrir sér á samkomu þar sem úthúðað er minnihlutahópum.

„Hvað varð um mennskuna og mannúðina? Hvernig snúum við þessari öfugþróun við?“ spyr Sigursteinn að lokum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Morðmál Margrétar Löf sett á dagskrá
Innlent

Morðmál Margrétar Löf sett á dagskrá

Fer fram tvo daga í nóvember
Sérfræðingar SÞ hvetja FIFA til að banna Ísrael
Sport

Sérfræðingar SÞ hvetja FIFA til að banna Ísrael

Blaðamenn nefna leyniþjónustumennina á bakvið dauða Navalny
Heimur

Blaðamenn nefna leyniþjónustumennina á bakvið dauða Navalny

Troðfullt í strætó
Myndir
Innlent

Troðfullt í strætó

Bjarni Ben opnar sig um sína helstu ástríðu
Fólk

Bjarni Ben opnar sig um sína helstu ástríðu

Dæmdur fyrir að áreita 46 börn á Kanaríeyjum
Heimur

Dæmdur fyrir að áreita 46 börn á Kanaríeyjum

Séra Yrsa Þórðardóttir er fallin frá
Minning

Séra Yrsa Þórðardóttir er fallin frá

Lögreglan varar við Skattsvikurum
Innlent

Lögreglan varar við Skattsvikurum

Verðlaunahús til sölu á 380 milljónir
Myndir
Fólk

Verðlaunahús til sölu á 380 milljónir

Stærsta heilbrigðisstofnun Gaza-borgar eyðilögð í sprengjuárás
Heimur

Stærsta heilbrigðisstofnun Gaza-borgar eyðilögð í sprengjuárás

Uggi Þórður Agnarsson látinn
Minning

Uggi Þórður Agnarsson látinn

Flugvallaflygindin„alvarlegasta árás á mikilvæga innviði Danmerkur hingað til“
Heimur

Flugvallaflygindin„alvarlegasta árás á mikilvæga innviði Danmerkur hingað til“

Lagði bílnum á vatnsskúlptúr í Hafnarstræti
Myndband
Innlent

Lagði bílnum á vatnsskúlptúr í Hafnarstræti

Pólitík

Jón Gnarr leggur til nafnabreytingu á Viðreisn
Pólitík

Jón Gnarr leggur til nafnabreytingu á Viðreisn

„Viðreisn er því frekar hlutlaust nafn. Kannski eins og Hyundai“
„Þessi samningur hefur mikla þýðingu fyrir hagsmuni okkar“
Pólitík

„Þessi samningur hefur mikla þýðingu fyrir hagsmuni okkar“

Flytur ávarp hjá samtökum sem sæta rannsókn
Pólitík

Flytur ávarp hjá samtökum sem sæta rannsókn

Alexandra segir antifa ekki vera samtök heldur andstaða við fasisma
Pólitík

Alexandra segir antifa ekki vera samtök heldur andstaða við fasisma

Hannes Hólmsteinn tekur upp hanskann fyrir Trump
Pólitík

Hannes Hólmsteinn tekur upp hanskann fyrir Trump

Jón Gnarr biðlar til Höllu forseta
Pólitík

Jón Gnarr biðlar til Höllu forseta

Loka auglýsingu