1
Minning

Séra Yrsa Þórðardóttir er fallin frá

2
Fólk

Bjarni Ben opnar sig um sína helstu ástríðu

3
Peningar

Mjölnir blæðir milljónum

4
Innlent

Morðmál Margrétar Löf sett á dagskrá

5
Innlent

Karl er fundinn

6
Minning

Uggi Þórður Agnarsson látinn

7
Innlent

Lögreglan varar við Skattsvikurum

8
Fólk

Verðlaunahús til sölu á 380 milljónir

9
Innlent

Lagði bílnum á vatnsskúlptúr í Hafnarstræti

10
Heimur

Dæmdur fyrir að áreita 46 börn á Kanaríeyjum

Til baka

Sigmundur Davíð talaði fyrir tómum þingsal í nótt

Þingmenn stjórnarandstöðunnar slá met í málþófi.

Alþingi í alla nótt
Sigmundur Davíð GunnlaugssonÞingmenn stjórnarandstöðunnar héldu ræður fram á nótt.
Mynd: Víkingur

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, lét það ekki stöðva sig í nótt að enginn þingmaður sæti í þingsalnum til að heyra ræðuna hans. Hann stóð í ræðupontunni þegar að klukkan sló miðnætti en þingfundi var ekki slitið fyrr en rúmum klukkutíma síðar.

Meðal þingmanna sem héldu ræður á seinustu tímum þingfundarins voru Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. Hún er aftur á mælendaskrá í dag og mun halda sína 52. ræðu um veiðigjaldið. Bryndís hefur vakið athygli vegna orða hennar árið 2019 þar sem hún gagnrýndi málþóf.

Aðrir þingmenn sem héldu ræður í nótt voru Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrrum ráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður, Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og þingmaður í Suðurkjördæmi, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi, sem lauk seinustu ræðu þingfundarins klukkan 1:09, en hún er systir Sigmundar Davíðs.

Gagnrýndi málþóf árið 2019

Bryndís Haraldsdóttir

Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er sá þingmaður sem er á mælendaskrá í umræðu um veiðigjald á Alþingi í dag, sem hefur haldið næst flestar ræður um málið, eða 52.

Bryndís hefur vakið athygli vegna þess að hún gagnrýndi harðlega málþóf fyrrverandi minnihluta á Alþingi í grein sem hún sendi frá sér árið 2019.

„Því höfum við fengist að kynnast síðustu daga á Alþingi, þar sem fámennur hópur þingmanna hefur tekið afgreiðslu þingmála í gíslingu með málþófi,“ skrifaði hún þá.

„Það er nefnilega ekkert í þingsköpum sem bannar þingmanni að flytja sömu ræðuna tvisvar, eða í tugi skipta, sé út í það farið. Málfrelsi þingmanna er mikilvægt og er það sérstaklega varið í flestum þjóðþingum heims. En málþóf á ekkert skylt við málfrelsi eða lýðræði, og þekkist nánast hvergi utan Íslands.“

Þingið mánuð fram yfir

Umræður um breytingu á veiðigjöldum standa enn yfir og hafa seinkað þinglokum um tæpan mánuð, en samkvæmt starfsáætlun átti þingi að ljúka 13. júní. Þingmenn stjórnarandstöðunnar eru mótfallnir breytingunum sem frumvarpið boðar. Þau reyna að koma í veg fyrir að það verði samþykkt með því að lengja umræðurnar og fresta þinglokum. Vísa þingmennirnir til fjölda athugasemda frá sveitarfélögum og útgerðum, sem vara við áhrifum svokallaðrar „leiðréttingar“ veiðigjalda. Þá hafa þeir gagnrýnt að breyting hafi orðið á útreikningum eftir því sem málið hefur þróast á Alþingi.

Ræðukóngarnir í veiðigjaldsumræðunni*

Þórarinn Ingi Pétursson, Framsóknarflokki: 130 ræður, 6,5 stundir

Ingibjörg Davíðsdóttir, Miðflokkurinn: 102 ræður, 5,7 stundir

Jón Pétur Zimsen, Sjálfstæðisflokkurinn: 81 ræða, 5,5 stundir

Njáll Trausti Friðbertsson, Sjálfstæðisflokkurinn: 93 ræður, 5,1 stundir

Þorgrímur Sigmundsson, Miðflokkurinn: 101 ræða, 5 stundir

* Heimild: Malthof.is

Forseta Alþingis er heimilt að leggja undir þingið að hætta umræðu um mál ef ræðutíminn er kominn úr hófi. Þórunn Sveinbjarnadóttir, forseti Alþingis, hefur þó ekki tekið til þeirra ráða enn. Í heildina hefur verið rætt um veiðigjöldin í 142 klukkustundir en Íslandsmetið er 147 klukkustundir fyrir umræður um þriðja orkupakkann árið 2019.

Lengst hefur talað Þórarinn Ingi Pétursson, þingmaður Framsóknarflokksins, í samtals 6,5 klukkustundir í 130 ræðum um veiðigjaldið, en greint var frá því á Mannlífi í gær að hann hefði haldið röð ræða um sögu úr sjávarútvegi frá þarsíðustu aldarmótum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Eldamennska fór úr böndunum
Innlent

Eldamennska fór úr böndunum

Reykræsta þurfti húsið að sögn lögreglu
Morðmál Margrétar Löf sett á dagskrá
Innlent

Morðmál Margrétar Löf sett á dagskrá

Sérfræðingar SÞ hvetja FIFA til að banna Ísrael
Sport

Sérfræðingar SÞ hvetja FIFA til að banna Ísrael

Blaðamenn nefna leyniþjónustumennina á bakvið dauða Navalny
Heimur

Blaðamenn nefna leyniþjónustumennina á bakvið dauða Navalny

Troðfullt í strætó
Myndir
Innlent

Troðfullt í strætó

Bjarni Ben opnar sig um sína helstu ástríðu
Fólk

Bjarni Ben opnar sig um sína helstu ástríðu

Dæmdur fyrir að áreita 46 börn á Kanaríeyjum
Heimur

Dæmdur fyrir að áreita 46 börn á Kanaríeyjum

Séra Yrsa Þórðardóttir er fallin frá
Minning

Séra Yrsa Þórðardóttir er fallin frá

Lögreglan varar við Skattsvikurum
Innlent

Lögreglan varar við Skattsvikurum

Verðlaunahús til sölu á 380 milljónir
Myndir
Fólk

Verðlaunahús til sölu á 380 milljónir

Stærsta heilbrigðisstofnun Gaza-borgar eyðilögð í sprengjuárás
Heimur

Stærsta heilbrigðisstofnun Gaza-borgar eyðilögð í sprengjuárás

Uggi Þórður Agnarsson látinn
Minning

Uggi Þórður Agnarsson látinn

Flugvallaflygindin„alvarlegasta árás á mikilvæga innviði Danmerkur hingað til“
Heimur

Flugvallaflygindin„alvarlegasta árás á mikilvæga innviði Danmerkur hingað til“

Pólitík

Jón Gnarr leggur til nafnabreytingu á Viðreisn
Pólitík

Jón Gnarr leggur til nafnabreytingu á Viðreisn

„Viðreisn er því frekar hlutlaust nafn. Kannski eins og Hyundai“
„Þessi samningur hefur mikla þýðingu fyrir hagsmuni okkar“
Pólitík

„Þessi samningur hefur mikla þýðingu fyrir hagsmuni okkar“

Flytur ávarp hjá samtökum sem sæta rannsókn
Pólitík

Flytur ávarp hjá samtökum sem sæta rannsókn

Alexandra segir antifa ekki vera samtök heldur andstaða við fasisma
Pólitík

Alexandra segir antifa ekki vera samtök heldur andstaða við fasisma

Hannes Hólmsteinn tekur upp hanskann fyrir Trump
Pólitík

Hannes Hólmsteinn tekur upp hanskann fyrir Trump

Jón Gnarr biðlar til Höllu forseta
Pólitík

Jón Gnarr biðlar til Höllu forseta

Loka auglýsingu