
Heimildin hefur tekið saman sinn árlega Hátekjulista en á honum er að finna tekjuhæstu 1% Íslendinga fundin með ítarlegri leit ritstjórnar. Auk þess tekur hann ekki eingöngu mið af launatekjum heldur einnig fjármagnstekjum, svo sem arðgreiðslum til eigenda fyrirtækja, en oft eru launatekjur lítill hluti raunverulegra tekna.
Meðal þess sem Heimildin hefur gert er að birta tölurnar og nöfnin eftir sveitarfélögunum.
Í 1. sæti á Seltjarnarnesi er Davíð Helgason, fjárfestir og stofnandi Unity, en hann var með 453.391.143 krónur í heildartekjur. Hann er í 50. sæti á heildarlistanum.
Í 16. sæti listans Róbert Vinsent Tómasson, framkvæmdastjóri Cargo Express, en hann var með 117.414.653 krónur í heildartekjur. Hann er í 386. sæti á heildarlistanum.
Komment