
Hlaðvarpsþátturinn Ein pæling hefur verið með vinsælli hlaðvörpum Íslands undanfarna mánuði en þátturinn er þekktur fyrir takast á við umdeild umræðuefni og fá gesti sem setja fram óhefðbundnar skoðanir sína. Hlédís Maren Guðmundsdóttir, félagsfræðingur og fyrrverandi blaðamaður, er gestur í nýjum þætti.
Ræðir Hlédís um ýmislegt í þættinum en kemur inn á að hún óttist í fyrsta skipti á ævinni að labba heim úr bænum en hún segist sjálf búa í miðbæ Reykjavíkur.
„Ég bý í miðbænum og ég er orðin hrædd við að labba heim vegna þess að ég hef lifað allt mitt líf hérna. Ég er komin yfir þrítugt og í fyrsta skipti er ég að verða fyrir áreiti í bænum, mér finnst þetta ótrúlega skrýtin þróun. Ég hef aldrei lent í þessu áður,“ segir félagsfræðingurinn í þættinum. Í kjölfarið spyr Þórarinn Hjartarson þáttastjórnandi hverjir séu að áreita hana.
„Það eru ekki íslenskir karlmenn og það er bara staðreynd og það er leiðinlegt að þurfa tala um það en við þurfum að tala um þetta. Fólk neitar að horfast í augu við þetta en þetta er öryggismál fyrir konur og við þurfum bara að líta til þeirra þjóða sem við berum okkur saman við og læra af reynslu þeirra og taka þessu svolítið föstum höndum vegna þess að það er fullt af mjög góðu fólki sem kemur hingað og sest hér að og mun einhvern veginn líða fyrir það að við séum með óstjórn á þessum málaflokkum. Það er engum greiði gerður að vera einhvern veginn að neita takast á við þetta.“
Ummæli Hlédísar hafa vakið athygli á samfélagsmiðlum og segjast konur hafa verið áreittar af íslenskum karlmönnum í gegnum árin en þær ætli þó ekki að efast um hennar upplifun.
Komment