
Valur Gunnarsson, rithöfundur og blaðamaður skrifaði stutta en sterka Facebook-færslu í dag þar sem hann talar um málningaslettuna sem Palestínumaður skvetti á ljósmyndara Morgunblaðsins en setur málið í stærra samhengi.
„Já, það er ömurlegt að henda málningu yfir ljósmyndara sem er að fjalla um mótmæli. Nei, það á ekki að vísa neinum úr landi af þeim sökum.“ Þannig hefst færsla Vals, sem hefur getið sér gott orð fyrir skáldsögur sínar og blaðaskrif, meðal annars frá hernuminni Úkraínu. Bætir hann við:
„Og já, ekkert á að draga athygli okkar frá því sem raunverulega skiptir máli. Yfir 60.000 Palestínumenn hið minnsta drepnir á undanförnum 22 mánuðum með hefðbundnum vopnum. Og nú á að bæta í, þegar hungurvopninu er beitt í ofanálag.“
Lokaorðin eru beint áfram en sönn.
„Blaðamenn í Palestínu eru sveltir, líkt og allir aðrir þar.“
Rímar færsla Vals við færslur margra annarra, meðal annars Möggu Stínu, söngkonu og aðgerðarsinna, sem í gær tók í sama streng í Facebook-færslu.
Komment