1
Fólk

Illa gengur hjá fyrrum Ungfrú Ísland að selja Sigvaldahús

2
Innlent

Matvælastofnun varar við fæðubótarefni

3
Peningar

Mikið tap hjá Svövu í Sautján á síðasta ári

4
Landið

Auto ehf. skuldar 16 milljónir í dagsektir

5
Fólk

Endaraðhús á Seltjarnarnesi með stórfenglegu útsýni

6
Heimur

Áhöfn skemmtisnekkju hélt froðupartýinu áfram þrátt fyrir andlát farþega

7
Heimur

Grunnskólakennari gripinn með kókaín

8
Innlent

Eldri maður lést í banaslysi við Vatnagarða

9
Heimur

Ítalía sendir herskip til hjálpar flota Gretu Thunberg

10
Innlent

Seðlabankastjóri undir smásjá yfirvalda

Til baka

RÚV leiðréttir frásögn af Ásthildi Lóu

„Fréttastofa RÚV harmar þessi mistök og biður alla hlutaðeigandi velvirðingar.“

Höfuðstöðvar Ríkisútvarpsins.
RíkisútvarpiðHefur mætt harðri gagnrýni.

Ríkisútvarpið leiðrétti í dag inngang að frétt sem sögð var af sambandi Ásthildar Lóu Þórsdóttur, fráfarandi mennta- og barnamálaráðherra, sem sögð var fimmtudaginn 20. mars síðastliðinn.

Í kynningu fréttarinnar sagði að Ásthildur Lóa hefði eignast barn með 15 ára barni.

„Í inngangi að umfjöllun Spegilsins, þar sem rætt var við álitsgjafa um mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur fimmtudaginn 20. mars klukkan 18.10, kom fram sú staðhæfing að Ásthildur Lóa hefði átt barn með 15 ára pilti, þá 22 ára. Það er rangt. Hið rétta er að pilturinn var 16 ára og Ásthildur Lóa 23 ára þegar þau eignaðist barnið, eins og kom fram í fréttum RÚV af málinu. Fréttastofa RÚV harmar þessi mistök og biður alla hlutaðeigandi velvirðingar,“ sagði Freyr Gígja Gunnarsson, stjórnandi Spegilsins, í þættinum í dag.

Ríkisúvarpið hefur verið gagnrýnt harðlega vegna umfjöllunarinnar um Ásthildi Lóu. Að sögn Heiðars Arnar Sigurfinnsonar, fréttastjóra RÚV, var ekki talin ástæða til að leiðrétta efnisatriði, enda væru heimildir að baki.

RÚV stendur við annað

Í frétt RÚV fimmutdaginn í síðustu viku var Ásthildur Lóa meðal annars sökuð um að hafa „tálmað umgengni“ og var vitnað til laga- og refsiákvæða sem áttu ekki við um lögræðisaldur. Að auki sagði Ríkisútvarpið að Ásthildur Lóa hefði „leitt unglingastarf“. Þessu hefur hún hafnað, en Ríkisútvarpið byggði umfjöllun sína á barnsföður hennar og hefur ekki talið ástæðu til frekari leiðréttinga. Þá sagði RÚV að „trúnaðarupplýsingar [hefðu] borist til ráðherra“ og var fullyrt að starfsmenn ráðuneytisins hefðu „fullvissað sendanda um að öll erindi væru trúnaðarmál“. Síðar kom í ljós að sendandi erindisins hafði boðið fram að Ásthildur Lóa yrði viðstödd fund hennar með forsætisráðherra um málið, en boðaði að hún lyki afskiptum af því ef Ásthildur Lóa viki úr embætti ráðherra, sem hún gerði áður en frétt RÚV var birt.

Byggðu fréttina á annarri hliðinni

Í grein Heiðars Arnar Sigurfinnssonar, fréttastjóra RÚV, undir titlinum Lýðræðið deyr í myrkrinu, svaraði hann gagnrýni með því að Ásthildur Lóa hefði sjálf ákveðið að segja af sér og að reynt hefði verið að hafa samband við hana. „Fréttastofa RÚV byggði fyrstu frétt sína á viðtölum við barnsföður Ásthildar Lóu og fyrrverandi tengdamóður hans, sem hafði sent forsætisráðuneytinu erindi um málið,“ segir hann.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Grunnskólakennari gripinn með kókaín
Heimur

Grunnskólakennari gripinn með kókaín

Stærðfræðikennarinn hefur unnið sem kennari í áratug.
Yfir þúsund ökumenn óku of hratt við grunnskóla
Innlent

Yfir þúsund ökumenn óku of hratt við grunnskóla

Emmsjé Gauti selur íbúðina í Vesturbænum
Myndir
Fólk

Emmsjé Gauti selur íbúðina í Vesturbænum

Fuglainflúensa greinist í mávum á Íslandi
Innlent

Fuglainflúensa greinist í mávum á Íslandi

Karl rifjar upp kynni sín af 13 ára Páli Óskari
Fólk

Karl rifjar upp kynni sín af 13 ára Páli Óskari

Reiðir stuðningsmenn Áslaugar
Slúður

Reiðir stuðningsmenn Áslaugar

Fyrrum leikmaður Aftureldingar segir skilið við WWE
Myndband
Sport

Fyrrum leikmaður Aftureldingar segir skilið við WWE

Illa gengur hjá fyrrum Ungfrú Ísland að selja Sigvaldahús
Myndir
Fólk

Illa gengur hjá fyrrum Ungfrú Ísland að selja Sigvaldahús

Seðlabankastjóri undir smásjá yfirvalda
Innlent

Seðlabankastjóri undir smásjá yfirvalda

Ökufantur ók niður fjölda skilta
Innlent

Ökufantur ók niður fjölda skilta

Eldri maður lést í banaslysi við Vatnagarða
Innlent

Eldri maður lést í banaslysi við Vatnagarða

Dæmdur í fangelsi fyrir tæp 12 grömm af maríhúana
Innlent

Dæmdur í fangelsi fyrir tæp 12 grömm af maríhúana

Pólitík

Jón Gnarr leggur til nafnabreytingu á Viðreisn
Pólitík

Jón Gnarr leggur til nafnabreytingu á Viðreisn

„Viðreisn er því frekar hlutlaust nafn. Kannski eins og Hyundai“
„Þessi samningur hefur mikla þýðingu fyrir hagsmuni okkar“
Pólitík

„Þessi samningur hefur mikla þýðingu fyrir hagsmuni okkar“

Flytur ávarp hjá samtökum sem sæta rannsókn
Pólitík

Flytur ávarp hjá samtökum sem sæta rannsókn

Alexandra segir antifa ekki vera samtök heldur andstaða við fasisma
Pólitík

Alexandra segir antifa ekki vera samtök heldur andstaða við fasisma

Hannes Hólmsteinn tekur upp hanskann fyrir Trump
Pólitík

Hannes Hólmsteinn tekur upp hanskann fyrir Trump

Jón Gnarr biðlar til Höllu forseta
Pólitík

Jón Gnarr biðlar til Höllu forseta

Loka auglýsingu