1
Innlent

Bílstjórinn umdeildi í Lækjargötu opnar sig um atvik gærdagsins

2
Innlent

Daniel tekinn með eiturlyf og vopn við Perluna

3
Peningar

Tíu spurningar sem Jón Ásgeir hefur ekki svarað

4
Innlent

Spennuþrungið andrúmsloft á mótmælunum

5
Innlent

Íslenskur krakkadrykkur veldur áhyggjum

6
Fólk

Jón Steinar dásamar „A Star Is Born“

7
Menning

Duft í Iðnó

8
Innlent

Hnífstunguárás tilkynnt til lögreglu í nótt

9
Innlent

Kona í Hafnarfirði handtekin fyrir líkamsárás

10
Innlent

Alma endurkjörin

Til baka

Ragnhildur er orðin þreytt á blekkingarleiknum gagnvart hryllingnum á Gaza

„Ég hef fylgst náið með atburðum í eitt og hálft ár og ég veit að það má skjóta sjúkraflutningamenn“

Gaza
Rauði hálfmáninn.Starfsmenn Rauða hálfmánans syrgja félaga sína.

„Í gær virðast hafa borist til Íslands ögn bjagaðar fréttir af palestínsku sjúkraflutningamönnunum sem voru teknir af lífi af ísraelska hernum fyrir tíu dögum. Ég las um þennan orðróm samdægurs, 23. mars, og sá hann svo staðfestan 28. mars.“ Þannig hefst Facebook-færsla rithöfundarins Ragnhildar Hólmgeirsdóttur en þar talar hún um enn einn stríðsglæp Ísraelshers, þegar hermenn tóku 14 heilbrigðisstarfsmenn Rauða hálfmánans og einn starfsmann Sameinuðu þjóðanna af lífi, einn á eftir öðrum og grófu síðan í fjöldagröf, þann 23. mars.

Ragnhildur_Holmgeirsdottir
Ragnhildur HólmgeirsdóttirHugur rithöfundarins er með samfélaginu á Gaza.
Mynd: Bengt Oberger

Ragnhildur segist þó ekki vera hneyksluð og beitir kaldhæðninni óspart:

„Og ég er ekkert hneyksluð. Ég hef fylgst náið með atburðum í eitt og hálft ár og ég veit að það má skjóta sjúkraflutningamenn. Ég veit að það er allt í lagi að eyðileggja skúkrabíla. Ég veit að það má taka fólk af lífi. Ég veit að það skiptir ekki máli þó lík finnist með bundnar hendur í fjöldagröfum. Ég veit að 15 aftökur á einum degi er ekkert merkilegt.

Í strætó í morgun velti ég því fyrir mér hvort fólkið í kringum mig grunaði hvers konar síkópati deildi með þeim vagni. En samt eru þetta mjög hversdagslegar skoðanir. Við vitum öll að allt þetta og meira til má gera. Í næstu viku mun gerast eitthvað annað sem veldur því að við þurfum öll upp á nýtt að sameinast um að þykjast að það séu allir fúndamentalt á móti fjöldagröfum.“

Segist hún ekki nenna þessu lengur, að taka þátt í þeirri blekkingu að þessi stríðsglæpur sé eitthvað alveg nýtt.

„En ég held að ég nenni því ekki lengur. Hringekjan er orðin svo þreytt og með hverjum nýjum hring tökum við þátt í þeirri blekkingu að þetta sé eitthvað nýtt. Eins og allir hinir glæpirnir sem gerðust allar hinar vikurnar á undan hafi ekki gerst og síðan fallið fyrir daufum eyrum. Við byrjum hverja einustu viku á núllpunkti.“

Segist Ragnhildur að lokum ætla þess í stað að hugsa til þess samfélags sem nær, þrátt fyrir það helvítis sem það býr við, nær að grafa lík hinna 15 manna upp úr sandinum og veita þeim almennilega útför.

„Þess í stað langar mig að hugsa um þessa 15 menn sem höfðu mætt í vinnuna í þjóðarmorði í eitt og hálft ár til að draga sundurtætt fólk undan rústum. Þeir vissu að starf þeirra gerði þá að skotmörkum en þeir mættu samt. Og samfélagið í kringum þá er enn nógu samanhangandi til að geta grafið þá upp úr sandinum og veitt þeim útför. Það er ekkert annað en ótrúlegt. Eitthvað smávegis til að hafa í huga nú þegar framtíðin verður ískyggilegri og ískyggilegri.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Alma endurkjörin
Innlent

Alma endurkjörin

„Ég er innilega þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt“
Kona í Hafnarfirði handtekin fyrir líkamsárás
Innlent

Kona í Hafnarfirði handtekin fyrir líkamsárás

Jón Steinar dásamar „A Star Is Born“
Fólk

Jón Steinar dásamar „A Star Is Born“

Daniel tekinn með eiturlyf og vopn við Perluna
Innlent

Daniel tekinn með eiturlyf og vopn við Perluna

Tíu spurningar sem Jón Ásgeir hefur ekki svarað
Peningar

Tíu spurningar sem Jón Ásgeir hefur ekki svarað

Íslenskur krakkadrykkur veldur áhyggjum
Innlent

Íslenskur krakkadrykkur veldur áhyggjum

Bílstjórinn umdeildi í Lækjargötu opnar sig um atvik gærdagsins
Innlent

Bílstjórinn umdeildi í Lækjargötu opnar sig um atvik gærdagsins

Spennuþrungið andrúmsloft á mótmælunum
Myndir
Innlent

Spennuþrungið andrúmsloft á mótmælunum

Hnífstunguárás tilkynnt til lögreglu í nótt
Innlent

Hnífstunguárás tilkynnt til lögreglu í nótt

Segir það ekki skipta máli hvort hún sé hrædd eða ekki
Innlent

Segir það ekki skipta máli hvort hún sé hrædd eða ekki

Lafði Patricia Routledge lést í svefni
Heimur

Lafði Patricia Routledge lést í svefni

Innlent

Alma endurkjörin
Innlent

Alma endurkjörin

„Ég er innilega þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt“
Spennuþrungið andrúmsloft á mótmælunum
Myndir
Innlent

Spennuþrungið andrúmsloft á mótmælunum

Kona í Hafnarfirði handtekin fyrir líkamsárás
Innlent

Kona í Hafnarfirði handtekin fyrir líkamsárás

Daniel tekinn með eiturlyf og vopn við Perluna
Innlent

Daniel tekinn með eiturlyf og vopn við Perluna

Íslenskur krakkadrykkur veldur áhyggjum
Innlent

Íslenskur krakkadrykkur veldur áhyggjum

Bílstjórinn umdeildi í Lækjargötu opnar sig um atvik gærdagsins
Innlent

Bílstjórinn umdeildi í Lækjargötu opnar sig um atvik gærdagsins

Loka auglýsingu