Alls verða 118 milljónum úthlutað til orkusparandi aðgerða í gróðurhúsum líkt og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra greinir frá
Alls verða 118 milljónum úthlutað til orkusparandi aðgerða í gróðurhúsum líkt og Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra greinir frá.
Ráðherra greinir frá því að loftslags- og orkusjóður hafi „úthlutað rúmlega 118 milljónum króna í styrki til 10 verkefna sem miða að því að draga úr orkunotkun í íslenskum gróðurhúsum, sem getur skilað orkusparnaði upp á allt að 8,3 GWst á ári.“
Jóhann Páll gerði breytingu á reglugerð nr. 1566/2024 um Loftslags- og orkusjóð í vor og fól sjóðnum að veita garðyrkjubændum sérstakan fjárfestingarstuðning í þágu bættrar orkunýtni og orkusparnaðar:
„Þetta er áherslumál ríkisstjórnarinnar og í fyrsta skipti í áratugi sem stjórnvöld ráðast í skipulegan fjárfestingarstuðning við framleiðendur garðyrkjuafurða“ og segir hann að fjárfestingarstyrkirnir munu skila sér í „lægri orkureikningum fyrir bændur, bættri orkunýtni og aukinni framleiðni í greininni. Orkusparnaðurinn er verulegur og jafngildir árlegri raforkunotkun 2 þúsund heimila.“
Í máli ráðherra kemur fram að verkefnin er hljóta styrk snúi að tæknivæðingu og bættri lýsingu með LED-lausnum er styðja við tæknivæðingu og samkeppnishæfni greinarinnar og geta skilað áætluðum orkusparnaði upp á 8,3 GWst á ári:
„Sá sparnaður samsvarar raforkunotkun 2.029 heimila eða árlegri orkunotkun 2.774 rafbíla“ segir Jóhann Páll og bætir því við að auglýstar voru 160 milljónir króna til „úthlutunar en sótt var um styrki að fjárhæð 145 milljónum króna.“
Segir ráðherra að við úthlutun sé lögð áhersla á verkefni er skila sem mestum „orkusparnaði á hverja styrkkrónu og stuðla að betri rekstrarhagkvæmni í gróðurhúsum, auk þess sem þau nýtist sem fyrirmyndir fyrir aðra í greininni.“
Komment