
Heimildin hefur tekið saman sinn árlega Hátekjulista en á honum er að finna tekjuhæstu 1% Íslendinga fundin með ítarlegri leit ritstjórnar. Auk þess tekur hann ekki eingöngu mið af launatekjum heldur einnig fjármagnstekjum, svo sem arðgreiðslum til eigenda fyrirtækja, en oft eru launatekjur lítill hluti raunverulegra tekna.
Meðal þess sem Heimildin hefur gert er að birta tölurnar og nöfnin eftir sveitarfélögunum.
Í 1. sæti í Vestmannaeyjum er Ágúst Bergsson, fyrrverandi skipstjóri, en hann seldi bréf í Ísfélaginu og var með 459.874.473 krónur í heildartekjur. Hann er í 48. sæti á heildarlistanum.
Í 18. sæti í Vestmannaeyjum er Stefán Baldvin Friðriksson, forstjóri Ísfélagsins, en hann var með 51.242.989 krónur í heildartekjur. Hann er í 1532. sæti á heildarlistanum.
Komment