1
Minning

Séra Yrsa Þórðardóttir er fallin frá

2
Fólk

Bjarni Ben opnar sig um sína helstu ástríðu

3
Peningar

Mjölnir blæðir milljónum

4
Innlent

Morðmál Margrétar Löf sett á dagskrá

5
Minning

Uggi Þórður Agnarsson látinn

6
Innlent

Lögreglan varar við Skattsvikurum

7
Fólk

Verðlaunahús til sölu á 380 milljónir

8
Innlent

Lagði bílnum á vatnsskúlptúr í Hafnarstræti

9
Heimur

Dæmdur fyrir að áreita 46 börn á Kanaríeyjum

10
Heimur

Blaðamenn nefna leyniþjónustumennina á bakvið dauða Navalny

Til baka

Mogginn fær innspýtingu eftir tap upp á milljón á dag

Eigendur koma til hjálpar eftir að móðurfélag Morgunblaðsins tapaði aftur hundruð milljóna króna.

Davíð Oddsson
Davíð OddsssonVar ráðinn ritstjóri af nýjum eigendum Morgunblaðsins eftir að hafa verið seðlabankastjóri í efnahagshruninu.

Á sama tíma og Morgunblaðið greinir frá því að móðurfélag útgáfunnar tapaði 348 milljónum króna í fyrra, hefur félagið, sem heitir Þórsmörk ehf, aukið hlutafé um 266.600.000 króna.

Að auki hefur félagið heimilað hlutafjáraukningu upp á 133.400.000 króna til viðbótar.

Þetta þýðir að útgáfa Morgunblaðsins getur á endanum fengið í heild 400 milljóna króna innspýtingu frá eigendum sínum.

Eigendur Morgunblaðsins eru fyrst og fremst öflugustu útgerðarfélög landsins. Þar á meðal eru Kaupfélag Skagfirðinga, Ísfélag Vestmannaeyja og tengdir aðilar, auk Lýsis hf. og tengdra aðila. Stærsti einstaki eigandinn er Guðbjörg Matthíasdóttir, sem fer með yfirgnæfandi hlut í félögum sem eiga 37,9% hlutafjár.

Guðbjörg Matthíasdóttir eigandi Morgunblaðsins
Guðbjörg MatthíasdóttirEr stærsti einstaki eigandi Morgunblaðsins í gegnum félögin Hlyn A og Ísfélag Vestmannaeyja.

Meðal annarra eigenda eru síðan Sigurbjörn Magnússon, einnig þekktir fyrir að vera faðir Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, þingmanns og fyrrverandi ráðherra, sem fer með um 7% hlut og er stjórnarformaður.

Hlutafjáraukningin hefur ekki verið tilkynnt til Fjölmiðlanefndar og er því ekki vitað hver fjármagnaði kaupin og sömuleiðis er óvíst hvernig fer með þær 133 milljónir króna sem heimilt er að auka hlutafé um. Ef marka má rekstur félagsins í fyrra myndi aðeins taka 127 daga að klára slíka hlutafjáraukningu til viðbótar með viðvarandi taprekstri samstæðunnar.

Útgáfa Morgunblaðsins hefur skilað tapi öll ár nema eitt síðustu 16 ár, frá því félagið fór í þrot 2009 og fékk afskrifaðan á fjórða milljarð króna þegar útgerðarfélög tóku hana yfir. Eina árið sem rekstur Morgunblaðsins hefur ekki skilað tapi reyndist vera árið 2013 þegar 6 milljóna króna hagnaður náðist. Síðan þá hafa tapast samtals tæpir tveir milljarðar króna á verðlagi hvers árs.

Haraldur Johannessen, framkvæmdastjóri og annar ritstjóri Morgunblaðsins á móti Davíð Oddssyni, sagði í viðtali við blaðið í dag að erfið samkeppni við ríkið og tölvuárás hefðu verið helstu ástæður tapsins. Þá sagði hann Morgunblaðið hafa fært fram nýjungar með nýju appi og dagskrárgerð, meðal annars þætti Stefáns Einars Stefánssonar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Drónaárásir gerðar á fjölda hjálparbáta á leið til Gaza
Myndband
Heimur

Drónaárásir gerðar á fjölda hjálparbáta á leið til Gaza

„Við erum að upplifa þessar sálfræðilegu aðgerðir beint, hér og nú, en við látum ekki hræða okkur“
Mikið tap hjá Svövu í Sautján á síðasta ári
Peningar

Mikið tap hjá Svövu í Sautján á síðasta ári

Blómin á þakinu er uppáhalds barnabók forsætisráðherra
Fólk

Blómin á þakinu er uppáhalds barnabók forsætisráðherra

Eldamennska fór úr böndunum
Innlent

Eldamennska fór úr böndunum

Morðmál Margrétar Löf sett á dagskrá
Innlent

Morðmál Margrétar Löf sett á dagskrá

Sérfræðingar SÞ hvetja FIFA til að banna Ísrael
Sport

Sérfræðingar SÞ hvetja FIFA til að banna Ísrael

Blaðamenn nefna leyniþjónustumennina á bakvið dauða Navalny
Heimur

Blaðamenn nefna leyniþjónustumennina á bakvið dauða Navalny

Troðfullt í strætó
Myndir
Innlent

Troðfullt í strætó

Bjarni Ben opnar sig um sína helstu ástríðu
Fólk

Bjarni Ben opnar sig um sína helstu ástríðu

Dæmdur fyrir að áreita 46 börn á Kanaríeyjum
Heimur

Dæmdur fyrir að áreita 46 börn á Kanaríeyjum

Séra Yrsa Þórðardóttir er fallin frá
Minning

Séra Yrsa Þórðardóttir er fallin frá

Lögreglan varar við Skattsvikurum
Innlent

Lögreglan varar við Skattsvikurum

Verðlaunahús til sölu á 380 milljónir
Myndir
Fólk

Verðlaunahús til sölu á 380 milljónir

Peningar

Mikið tap hjá Svövu í Sautján á síðasta ári
Peningar

Mikið tap hjá Svövu í Sautján á síðasta ári

Tískudrottningin var fyrir fjárhagslegu áfalli vegna bruna
Fimmtán auðjöfrar á Austurlandi
Peningar

Fimmtán auðjöfrar á Austurlandi

Mjölnir blæðir milljónum
Peningar

Mjölnir blæðir milljónum

Airpods Pro 3 kosta 40 prósent meira á Íslandi
Peningar

Airpods Pro 3 kosta 40 prósent meira á Íslandi

Megavikutilboð Domino's hækkar í verði
Peningar

Megavikutilboð Domino's hækkar í verði

Sautján Akureyringar sem raka inn seðlum
Peningar

Sautján Akureyringar sem raka inn seðlum

Loka auglýsingu