
Sebastian Van Stockum, 20 ára karlmaður, var handtekinn á föstudag eftir að lögregla mætti að heimili í New Canaan í Connecticut eftir að hafa fengið símtal frá manni sem sagðist hafa myrt móður sína.
Sjúkraflutningamenn reyndu lífgunartilraunir á fórnarlambinu, sem lögreglan hefur enn ekki opinberlega nafngreint, en viðkomandi var úrskurðaður látinn á vettvangi. Van Stockum hefur verið ákærður fyrir morð og er haldið í gæsluvarðhaldi.
New Canaan er lítill auðugur bær um stutt frá New York borg þar sem nokkrar frægar manneskjur eins og Harry Connick Jr. og Paul Simon hafa átt heimili. Leikararnir Katherine Heigl og Christopher Lloyd ólust upp í bænum.
Þrátt fyrir friðsælt yfirbragð staðarins er þetta sami bær og þar sem Jennifer Dulos, 57 ára móðir, hvarf árið 2019 eftir að hafa skutlað börnum sínum í skólann. Hún var úrskurðuð látin árið 2023.
Eiginmaður hennar var handtekinn og ákærður fyrir morðið en hann svipti sig lífi áður en málið komst fyrir dóm.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg
Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218.

Komment