
Breska söngkonan Lola Young segir að hún sé „í lagi“ eftir að hafa hnigið niður á sviði á tónlistarhátíð í New York.
Á myndskeiði sem birtist á samfélagsmiðlum má sjá hina 24 ára gömlu söngkonu hrasa lítillega, missa síðan hljóðnemann og hrynja aftur fyrir sig á meðan hún söng á All Things Go hátíðinni í Forest Hills-leikvanginum á laugardag.
Eftir flutninginn skrifaði Young á Instagram:
„Hæ, fyrir þá sem sáu tónleikana mína á All Things Go í dag, þá er ég alveg í lagi núna. Takk fyrir allan stuðninginn, Lola.“
Young féll í gólfið á meðan hún söng lagið Conceited af sinni annarri plötu, This Wasn’t Meant For You Anyway, og var hún borin af sviði af sjúkraflutningamönnum á meðan áhorfendur hvöttu hana áfram með lófataki.
Fyrr á tónleikunum hafði Young rætt við áhorfendur og sagt að hún hefði átt „erfiða daga“. Hún bætti við:
„Stundum fær lífið mann til að finnast maður ekki geta haldið áfram, en vitið þiðg hvað? Í dag vaknaði ég og tók ákvörðun um að koma hingað, og ég vildi bara vera kúl … og stundum kastar lífið í mann sítrónum, og þá verður maður bara að búa til sítrónusafa.“
Rapparinn Doechii steig á svið á eftir Young og fékk áhorfendur til að hrópa: „Við elskum þig, Lola.“
Doechii sagði: „Hún er ótrúlega hæfileikarík listakona og henni leið ekki vel í kvöld. Mér þykir svo vænt um að þið hafið stutt hana og haldið henni uppi. Við skulum óska henni alls hins besta, er það ekki?“
Young, sem er þekkt fyrir að tjá sig opinskátt um andlega heilsu sína, aflýsti tónleikum í Prudential Center í New Jersey á föstudag.
Hún gaf út sína þriðju breiðskífu, I’m Only F**king Myself, í þessum mánuði en sló fyrst í gegn með smellinum Messy árið 2024.
Young hefur átt þrjú lög á topp 40 í Bretlandi og eina plötu á topp 10, auk þess sem hún hlaut Ivor Novello-verðlaunin sem efnilegur nýr listamaður fyrr á þessu ári. Þá var hún einnig tilnefnd bæði fyrir bestu plötuna (This Wasn’t Meant For You Anyway) og besta lagið.
Í sumar steig hún á svið á Glastonbury-hátíðinni og nýlega hvatti hún forsætisráðherrann Keir Starmer til að hafna frekari olíu- og gasborunum á Rosebank-svæðinu í Norðursjó.
Komment