1
Menning

Barnaveiki í Stykkishólmi

2
Fólk

Gersemi í Grafarvogi til sölu

3
Minning

Hallfríður Lilja Einarsdóttir er fallin frá

4
Minning

Birna Óladóttir er látin

5
Menning

GDRN með Kristmund Axel á heilanum

6
Heimur

14 ára stelpa látin eftir brjóstastækkunaraðgerð

7
Innlent

Nágrannaerjur fóru úr böndunum

8
Innlent

Veðrið lék landsmenn grátt

9
Innlent

Borgin endurnýjar samning sinn við Samtökin ’78

10
Innlent

Rafmagnshlaupahjól og bifreið lentu saman - Ökumaður kærður fyrir að vera með filmur

Til baka

„Lögum samkvæmt er fiskveiðiauðlindin sameign þjóðarinnar“

Jón Baldvin Hannibalsson spyr einfaldrar spurningar, „hverjir eiga Ís­land?“ og svarið við þeirri spurningu er mögulega að finna í orðum hans sjálfs.

Jón Baldvin
Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi ráðherraSpyr hverjir eigi Ísland í raun og veru

Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi utanríkisráðherra spyr einfaldrar spurningar, „hverjir eiga Ís­land?“ og mögulega er svarið við þeirri spurningu að finna í orðum Jóns Baldvins sjálfs.

Hann ræðir RÚV og hann ræðir fréttir tengdar veiðigjaldinu:

„Af fréttum RÚV og fréttatengdu efni um veiðileyfafrumvarp ríkisstjórnarinnar má ráða, að máttarstólpar þjóðfélagsins – okkar nýríku milljarðamæringar – sæti ómaklegum ofsóknum af hálfu stjórnarflokkanna. Ríkisstjórnin sé á góðri leið með að „slátra mjólkurkúnni“, sem hingað til hafi fært okkur björg í bú.“

Hræðsluáróður stundaður í Efstaleiti

Jón Baldvin segir að RÚV flytji „okkur þennan hræðsluáróður kvölds og morgna, án þess að reyna að bjóða uppá gagnrýnar fréttaskýringar, byggðar á staðreyndum“ og segir einnig að „við vitum ekki, hvort þessi dapurlega vanræksla stjórnast fremur af hræðslugæðum eða vangetu.“

Hann segir varla þurfa að ræða „moggann“ því hann er „beinlínis gerður út af milljarðamæringunum. Þeir borga árlegan hallarekstur blaðsins með glöðu geði, enda munar þá ekkert um slíkt smáræði. Öðruvísi mér áður brá, þegar Matthías og Styrmir réðu húsum í Hádegismóum.“

Fiskveiðiauðlindin er sameign þjóðarinnar

Og Jón Baldvin er klár á því að „lögum samkvæmt er fiskveiðiauðlindin sameign þjóðarinnar. Lögum samkvæmt má ekkert einstakt útgerðarfyrirtæki hafa forræði yfir meira en 12% veiðileyfa. Lögum samkvæmt byggja veiðileyfin – gríðarlega fémæt sem þau eru – á tímabundnum nýtingarrétti; þau mynda hvorki lögvarinn eignarétt né bótarétt á ríkið, ef þau eru afturkölluð. Þetta segja lögin.“

Hann færir í tal að „allar eru þessar grundvallarreglur löggjafarinnar einskis virtar í framkvæmd“ og „fyrirtækjasamsteypur skyldra aðila meira en tvöfalda veiðiheimildir sínar í reynd.“

Alþingi lætur eins og það viti ekki af þessu

Þá nefnir fyrrverandi ráðherra að rúmlega 10 fyrirtækjasamsteypur ráði yfir 2/3 hlutum allra aflaheimilda og að handhafar veiðiheimilda leigji, selji, kaupi, erfi, veðsetji og arfleiði veiðiheimildir, eins og um þeirra eigin eign sé að ræða:

„Þeim er skipt bróðurlega“ eins og við „hjónaskilnaði.“

Hann segir einnig að „Alþingi hefur, hingað til, látið eins og það viti ekki af þessu. Öfugmæli Eigandi veiðiheimildanna að nafninu til – þjóðin – sem leigir út afnotaréttinn, hefur hingað til ekki fengið neinar leigutekjur umfram kostnað þjóðarinnar af þjónustu við sjávarútveginn. Veiðileyfamillunum, sem hafa m.a. fjárfest í leigublokkum á höfuðborgarsvæðinu, þætti þetta lélegur „business“. Að kalla leigu fyrir einkaafnot af þjóðarauðlindinni – sem gerði þessa menn ofurríka – „landsbyggðarskatt“, er einum of langt gengið. Það er nefnilega öfugmæli. Það er einmitt landsbyggðin, sem mun sér í lagi njóta góðs af raunverulegum leigutekjum af veiðileyfum, í formi innviðauppbyggingar í samgöngum og heilbrigðisþjónustu, svo eitthvað sé nefnt.“

Spáðu hruni nytjastofna

Jón Baldvin segir að þar nemi „vanræksla fyrri ríkisstjórna hundruðum milljarða. Lítil fjölskyldufyrirtæki í sjávarplássum geta notið stighækkandi frítekjumarks, ef þörf krefur. Í þessu samhengi er ástæða til að rifja upp, að núverandi fiskveiðistjórnarkerfi er tilkomið sem neyðarráðstöfun, til þess að bregðast við neyðarástandi. Svartar skýrslur vísindamanna spáðu yfirvofandi hruni nytjastofna vegna ofveiði.“

Hann segir að stjórnvöld hafi séð sig „nauðbeygða til að takmarka sókn með valdboði og að niðurstaðan hafi orðið úthlutun veiðiheimilda til útgerðarmanna, sem gerðu út á árunum 1979-82. Miðað við veiðireynslu. Ókeypis. Hvers vegna ókeypis?“

Hann svarar sjálfum sér og segir að ástæðan hafi fyrst og síðast komið til „vegna þess að sjávarútvegurinn var þá - á seinustu áratugum liðinnar aldar - sokkinn í skuldir. Flotinn var alltof stór og „eftir hömlulaust fjárfestingafyllerí í nýjum skipum, til að veiða seinasta þorskinn. Kostnaðurinn var alltof mikill.“

Ástandið kallaði á róttækar breytingar

„Allt var rekið með tapi“ segir Jón Baldvin og bætir því við að engar varanlegar lausnir hafi fundist „nema síendurteknar gengisfellingar. Verðbólga og kjaraskerðing. Ella atvinnuleysi. Ástandið kallaði á róttækar breytingar. Skuldaskil. Uppgjör og gjaldþrot fyrirtækja. Úreldingarsjóð til að hraða fækkun skipa. Takmörkun sóknar. Aflamarks – eða - kvótakerfi. Veiðileyfi er einskonar einkaleyfi. Sá sem fær veiðileyfi fyrir 1000 tonnum af þorski, þarf ekki að óttast að keppinautur á nýju skipi verði fyrri til að hirða aflann.“

Árangurinn lét ekki á sér standa

Jón Baldvin vill að hugað sé betur að sjálfbærni veiðanna og tryggja „arðsemina“ og Þar með yrði komið í veg fyrir „ofveiði of stórs flota, sem ógnaði afrakstri helstu nytjastofna. Þetta átti að stuðla að samkeppnishæfni greinarinnar á alþjóðamörkuðum. En það tók tíma að snúa tapi í hagnað. Það var vonlaust að rukka veiðileyfagjald fyrr en tapi hafði verið snúið í hagnað. Það tók nokkur ár á seinasta áratug liðinnar aldar. Hundrað milljarðar á ári Árangurinn lét ekki á sér standa.“

Hann segir að skipum, sjómönnum og útgerðarmönnum hafi fækkað, tilkostnaður við útgerð minnkað, þótt aflaaukning, sem boðuð var, léti á sér standa.

„Frá og með aldamótunum 2000 mátti íslenskur sjávarútvegur - veiðar og vinnsla - teljast sjálfbær“ því afkoman fór „síbatnandi og samkvæmt opinberum upplýsingum frá Hagstofunni hefur „hagnaður af veiðum og vinnslu numið 90 – 100 milljörðum króna á ári á undanförnum árum. Þar af hefur auðlindarentan, hagnaður umfram allan rekstrarkostnað, numið 50 – 60 milljörðum króna. Þótt við miðum við lægri töluna, gerir það 500 milljarða á áratug. Það munar um minna.“

Jón Baldvin segir auðlindarentuna vera tilkomna fyrir atbeina ríkisins:

Leigutekjur ríkisins af þjóðarauðlindinni

„Hún verður til við það að ríkið – fyrir hönd eigandans, þjóðarinnar, takmarkar sóknina. Þar með er komið í veg fyrir að kostnaður við veiðarnar éti upp allan hagnað, eins og tíðkaðist áður fyrr. Við vorum að tala um, hvernig greiða eigi fyrir mörg hundruð milljarða innviðahalla á landsbyggðinni, sem safnast hefur upp á undanförnum árum. Partur af svarinu felst í leigutekjum ríkisins af þjóðarauðlindinni. Hinn parturinn felst í því að loka augljósum götum í núverandi skattkerfi, sem ekki aðeins leyfa – heldur beinlínis hvetja til – skattundandráttar stórefnamanna.“

Eignarhaldið yfirleitt vistað í eignaharldsfélögum

„Samkvæmt nýlegum upplýsingum frá SFS hefur útgreiddur arður til eigenda í fyrirtækjasamsteypum leyfishafa numið um 30% af hagnaði að jafnaði“ og hinn hlutinn situr inni í „fyrirtækjunum og eykur verðmæti þeirra. Eignarhaldið er yfirleitt vistað í eignaharldsfélögum“ og að „arðstekjur þeirra og söluhagnaður af hlutum er skattfrjáls.“

Hann segir að „skúffufélög af þessu tagi“ séu sum hver „skráð erlendis, þar sem erfitt er að rekja slóð eigendanna.“

Jón Baldvin segir að sum aðildarríki Evrópusambandsins, eins og til dæmis „Kýpur, Malta og Liechtenstein, sérhæfa sig í þessari þjónustu“ og að sama máli gegni um „milliliði sem selja óunninn fisk beint til smásala á erlendum mörkuðum, fyrir mun hærra verð en fæst við löndun á Íslandi.“

Hann spyr því:

„Hafa stéttafélög sjómanna ekkert við þetta að athuga? Hverjir eiga Ísland?“

Gríðarlegur hagnaður

Segir einnig að „Stefán Ólafsson, prófessor, hefur nýlega upplýst, að hagnaður fyrirtækja í sjávarútvegi er mun meiri en í öðrum atvinnuvegum á Íslandi. Það kemur einnig fram í frumvarpsdrögunum. Það hefur verið svo býsna lengi. Það þýðir að fjárfestingar í greininni eru með mesta móti í nýjum skipum og vinnslutækni, í gervigreind og sjálfvirkni.“

Jón Baldvin er á því að „íslenskur sjávarútvegur er í fremstu röð að þessu leyti í heiminum“ og að „sjálfvirkni sem leiðir af tæknibyltingu bætir samkeppnishæfnina og fækkar líka starfsfólkinu.“

Hann telur vera fróðlegt að fá upplýsingar um það frá SFS hvernig starfsfólki hefur fækkað á undanförnum árum og hve stór hluti þess er erlent vinnuafl:

Nýr fjármálaaðall

„Það hefur ekki farið fram hjá almenningi, að margir stærstu handhafar veiðileyfa í sjávarútvegi hafa verið atkvæðamiklir fjárfestar í óskyldum greinum á undanförnum árum“ og þannig hefur orðið til „ný „corporate elite“ - fjármálaaðall – með ráðandi ítök á mörgum sviðum atvinnulífs og stjórnmála.“

Hann segir að „við erum að tala um fjárfestingar í skipafélögum, tryggingafélögum, bönkum og fjármálastofnunum, ólíufélögum, ferðaþjónustu, hótelum og veitingastöðum, verktakafyrirtækjum og fasteignum – ekki síst á leigumarkaði á höfuðborgarsvæðinu. Þar hefur leiguverðið reyndar farið síhækkandi, öfugt við veiðileyfagjöldin. Þar vefst það ekki fyrir eigendum að gera greinarmun á sköttum og leigu!“

Jón Baldvin er á því að það sé fyrir löngu kominn „tími til að binda endi á pólitískt baktjaldamakk og skrumskældar áróðursherferðir veiðileyfishafa, þegar kemur að ákvörðun afnotagjalda að fiskveiðiauðlindinni.“

Lög um veiðileyfagjöld þurfa að vera skýr

Segir að útgerðarmenn, sjómenn, vinnslustöðvar, sveitarfélög og aðrir sem „málið varða, þurfa á að halda vissu um rekstrarumhverfi sitt og starfskjör. Það heitir „fyrirsjáanleiki“ nútildags. Lög og reglur um veiðileyfagjöld þurfa að vera skýr og skilmerkileg fram í tímann, þannig að stjórnsýslan geti reiknað út leigugjaldið á hverju fiskveiðiári.“

Og að mati Jóns Baldvins, varðandi verðmat, ber að „miða við markaðsverð heima og erlendis. Annar mælikvarði er einfaldlega ekki marktækur.“

Hann spyr einnig hvort ekki sé kominn tími til að endurreisa Þjóðhagsstofnun:

„Auðlindarentan er grundvallarhugtak. Hún er sá huti, sem eftir stendur af hagnaði fyrirtækis, þegar allur rekstrarkostnaður, þar með talinn kostnaður við að fjármagna viðhald og endurnýjun skipa og búnaðar, hefur verið dreginn frá. Auðlindarenta verður til vegna þess að ríkisvaldið, í umboði þjóðarinnar, takmarkar sókn í auðlindina. Ella yrði hún engin. Hún tilheyrir því eiganda auðlindarinnar, þjóðinni.“

Frumvarp stjórnarinnar hóflegt skref í rétta átt

Hann bendir á að það eina sem er „samningsatriði er, hvort eigandinn vill gefa afslátt af auðlindarentunni. En er það ekki misskilin góðgerðarstarfsemi að skilja hana alla eftir hjá fáeinum fjölskyldum, sem upphaflega fengu veiðileyfin ókeypis? Það var ekki meiningin í upphafi“ segir Jón Baldvin og bætir því við að „frumvarp ríkisstjórnarinnar er hóflegt skref í rétta átt. Næsta verkefni er að móta okkur auðlindastefnu til frambúðar. Það varðar ekki bara fiskimiðin og þær auðlindir, sem kunna að leynast undir hafsbotninum. Auðlindastefna, að norrænni fyrirmynd, tekur til landsins alls, þar með talið til eignarhalds á bújörðum. Hún varðar okkar ferska neysluvatn, orkuna í iðrum jarðar og í fallvötnum og ósnortna náttúru Íslands í öllu sínu veldi“ og þar eigum við að leita í smiðju „frænda okkar Norðmanna, sem eru öllum heiminum fyrirmynd á þessu sviði.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Gæti tekið áratugi að vinna upp biðlista að óbreyttu
Innlent

Gæti tekið áratugi að vinna upp biðlista að óbreyttu

Fulltrúar óhagnaðardrifinna leigufélaga ætla að leggja fram tillögur er miða að breytingum á fjármögnun íbúða innan almenna kerfisins
Glúmur hefur horft upp á „menn missa alla fjölskylduna í veðmálum“
Innlent

Glúmur hefur horft upp á „menn missa alla fjölskylduna í veðmálum“

Hiti á bilinu tíu til fimmtán stig
Innlent

Hiti á bilinu tíu til fimmtán stig

Rafmagnshlaupahjól og bifreið lentu saman - Ökumaður kærður fyrir að vera með filmur
Innlent

Rafmagnshlaupahjól og bifreið lentu saman - Ökumaður kærður fyrir að vera með filmur

Hallfríður Lilja Einarsdóttir er fallin frá
Minning

Hallfríður Lilja Einarsdóttir er fallin frá

Gersemi í Grafarvogi til sölu
Myndir
Fólk

Gersemi í Grafarvogi til sölu

Borgin endurnýjar samning sinn við Samtökin ’78
Innlent

Borgin endurnýjar samning sinn við Samtökin ’78

Veðrið lék landsmenn grátt
Myndir
Innlent

Veðrið lék landsmenn grátt

14 ára stelpa látin eftir brjóstastækkunaraðgerð
Heimur

14 ára stelpa látin eftir brjóstastækkunaraðgerð

GDRN með Kristmund Axel á heilanum
Menning

GDRN með Kristmund Axel á heilanum

Mesta hvassviðri sem komið hefur að landi í marga mánuði
Innlent

Mesta hvassviðri sem komið hefur að landi í marga mánuði

Innlent

Gæti tekið áratugi að vinna upp biðlista að óbreyttu
Innlent

Gæti tekið áratugi að vinna upp biðlista að óbreyttu

Fulltrúar óhagnaðardrifinna leigufélaga ætla að leggja fram tillögur er miða að breytingum á fjármögnun íbúða innan almenna kerfisins
Veðrið lék landsmenn grátt
Myndir
Innlent

Veðrið lék landsmenn grátt

Glúmur hefur horft upp á „menn missa alla fjölskylduna í veðmálum“
Innlent

Glúmur hefur horft upp á „menn missa alla fjölskylduna í veðmálum“

Hiti á bilinu tíu til fimmtán stig
Innlent

Hiti á bilinu tíu til fimmtán stig

Rafmagnshlaupahjól og bifreið lentu saman - Ökumaður kærður fyrir að vera með filmur
Innlent

Rafmagnshlaupahjól og bifreið lentu saman - Ökumaður kærður fyrir að vera með filmur

Borgin endurnýjar samning sinn við Samtökin ’78
Innlent

Borgin endurnýjar samning sinn við Samtökin ’78

Loka auglýsingu