1
Fólk

Illa gengur hjá fyrrum Ungfrú Ísland að selja Sigvaldahús

2
Innlent

Matvælastofnun varar við fæðubótarefni

3
Peningar

Mikið tap hjá Svövu í Sautján á síðasta ári

4
Landið

Auto ehf. skuldar 16 milljónir í dagsektir

5
Fólk

Endaraðhús á Seltjarnarnesi með stórfenglegu útsýni

6
Heimur

Áhöfn skemmtisnekkju hélt froðupartýinu áfram þrátt fyrir andlát farþega

7
Heimur

Grunnskólakennari gripinn með kókaín

8
Innlent

Eldri maður lést í banaslysi við Vatnagarða

9
Heimur

Ítalía sendir herskip til hjálpar flota Gretu Thunberg

10
Innlent

Seðlabankastjóri undir smásjá yfirvalda

Til baka

Jón Gnarr segist ekki hafa brotið siðareglur Alþingis

Stuðningsmenn Silju Báru segja þingmanninn hafa sýnt dómgreindarleysi

Jón Gnarr þingmaður
Stuðningsmenn Silju ósáttir við JónPrófessor ver Magnús Karl
Mynd: Skjáskot

Í síðustu viku voru kynnt úrslit rektorskjörs Háskóla Íslands en kosið var milli Silju Báru Ómarsdóttur, prófessors við Stjórnmálafræðideild, og Magnúsar Karls Magnússonar, prófessors við Læknadeild. Silja Bára vann þá kosningu og hlaut 50,7% atkvæða en Magnús 47,6%. Í fyrri umferð hafði Magnús fengið 33,6% atkvæða en Silja Bára 29,3%.

Hafa sumir stuðningsmenn Silju Báru og Magnúsar eldað grátt silfur á göngum skólans undanfarnar vikur og er lítill kærleikur þar á milli þrátt fyrir að úrslitin hafi verið kynnt.

Hluti af stuðningsmönnum Silju Báru heldur því fram að kennarar skólans hafi hringt í nemendur og sagt þeim að kjósa Magnús en vægi nemenda í kjörinu var 30% á móti 70% hjá starfsfólki Háskóla Íslands. Í viðtali við Mannlíf sagði Magnús Karl að hann kannist ekki við að kennarar hafi hringt í eigin nemendur fyrir sína hönd. Þá sagði hann einnig að sér þætti óeðlilegt að hringja í eigin nemendur til að hvetja þá til að kjósa ákveðinn frambjóðanda.

Mannlíf hefur hins vegar heimildir fyrir því kennarar við læknadeild skólans hafi sagt við nemendur sína í kennslustundum að þeir ættu að kjósa Magnús Karl.

Þessar ásakanir hafa farið fyrir brjóstið á stuðningsmönnum Magnúsar og skrifaði Jón Ólafsson, prófessor í menningarfræði og Sovétsögu, harðorða færslu á samfélagsmiðla um málið. Undir hana tóku nokkrir starfsmenn HÍ.

Annað sem hluti stuðningsmanna Silju Báru voru ósáttir við í kosningabaráttunni var framkoma Jóns Gnarr, þingmanns Viðreisnar, en hann lýsti yfir stuðningi sínum við Magnús Karl og kom fram í myndböndum á samfélagsmiðlum með Magnúsi.

Þykir þeim Jón hafa sýnt dómgreindarleysi í hlutverki sínu sem alþingismaður og mögulega brotið siðareglur Alþingis. Vísa þeir sérstaklega í meginreglur um hátterni þar sem stendur að þingmenn eigi ekki nýta opinbera stöðu sína til persónulegs ávinnings fyrir sig eða aðra. Þykir þeim persónulegur ávinningur Magnúsar í þessu tilfelli verulegur og þá skapi það hagsmunaárekstur að einstaklingur tekur sem beinan þátt í löggjöf um Háskóla Íslands skuli lýsa yfir stuðningi við einstakan frambjóðanda og taka þátt í framboði hans.

Jón Gnarr er hins vegar ósammála þessu. „Ég lít alls ekki svo á að ég hafi verið að beita, hvað þá misbeita, stöðu minni sérstaklega til hagsbóta neinum manni. Það eina sem ég gerði var að skrifa litla meðmælagrein fyrir vin minn, þar sem ég lýsti mínum persónulegu kynnum af honum. Auk þess gerðum við saman stutt efni fyrir samfélagsmiðla. Ég lék ekki í auglýsingu, fékk ekki neitt greitt né vilyrði um nokkuð annað. Að öðru leiti hef ég litlu við þetta mál að bæta,“ sagði þingmaðurinn í skriflegu svari til Mannlífs.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra, svaraði ekki ítrekuðum fyrirspurnum Mannlífs um hennar álit á málinu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Grunnskólakennari gripinn með kókaín
Heimur

Grunnskólakennari gripinn með kókaín

Stærðfræðikennarinn hefur unnið sem kennari í áratug.
Yfir þúsund ökumenn óku of hratt við grunnskóla
Innlent

Yfir þúsund ökumenn óku of hratt við grunnskóla

Emmsjé Gauti selur íbúðina í Vesturbænum
Myndir
Fólk

Emmsjé Gauti selur íbúðina í Vesturbænum

Fuglainflúensa greinist í mávum á Íslandi
Innlent

Fuglainflúensa greinist í mávum á Íslandi

Karl rifjar upp kynni sín af 13 ára Páli Óskari
Fólk

Karl rifjar upp kynni sín af 13 ára Páli Óskari

Reiðir stuðningsmenn Áslaugar
Slúður

Reiðir stuðningsmenn Áslaugar

Fyrrum leikmaður Aftureldingar segir skilið við WWE
Myndband
Sport

Fyrrum leikmaður Aftureldingar segir skilið við WWE

Illa gengur hjá fyrrum Ungfrú Ísland að selja Sigvaldahús
Myndir
Fólk

Illa gengur hjá fyrrum Ungfrú Ísland að selja Sigvaldahús

Seðlabankastjóri undir smásjá yfirvalda
Innlent

Seðlabankastjóri undir smásjá yfirvalda

Ökufantur ók niður fjölda skilta
Innlent

Ökufantur ók niður fjölda skilta

Eldri maður lést í banaslysi við Vatnagarða
Innlent

Eldri maður lést í banaslysi við Vatnagarða

Dæmdur í fangelsi fyrir tæp 12 grömm af maríhúana
Innlent

Dæmdur í fangelsi fyrir tæp 12 grömm af maríhúana

Pólitík

Jón Gnarr leggur til nafnabreytingu á Viðreisn
Pólitík

Jón Gnarr leggur til nafnabreytingu á Viðreisn

„Viðreisn er því frekar hlutlaust nafn. Kannski eins og Hyundai“
„Þessi samningur hefur mikla þýðingu fyrir hagsmuni okkar“
Pólitík

„Þessi samningur hefur mikla þýðingu fyrir hagsmuni okkar“

Flytur ávarp hjá samtökum sem sæta rannsókn
Pólitík

Flytur ávarp hjá samtökum sem sæta rannsókn

Alexandra segir antifa ekki vera samtök heldur andstaða við fasisma
Pólitík

Alexandra segir antifa ekki vera samtök heldur andstaða við fasisma

Hannes Hólmsteinn tekur upp hanskann fyrir Trump
Pólitík

Hannes Hólmsteinn tekur upp hanskann fyrir Trump

Jón Gnarr biðlar til Höllu forseta
Pólitík

Jón Gnarr biðlar til Höllu forseta

Loka auglýsingu