
Jódís Skúladóttir, fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna minnir á að grimmd Ísraela gagnvart Palestínumönnum er ekkert ný af nálinni, í nýrri Facebook-færslu.
Fellbæingurinn Jódís, sem féll af þingi í síðustu kosningum, segist ekki skilja hvernig hægt sé að halda uppi vörnum fyrir Ísrael í ljósi þess að „brjálsemi“ þeirra sé ekki fyrst að koma í ljós núna.
„Ég skil ekki hvernig er hægt að verja Ísrael, grimmd þeirra og brjálsemi er svo sannarlega ekki ný af nálinni. Þessari vísu póstaði ég fyrst árið 2014. Ísrael réðst enn einu sinni inn í Líbanon árið 2006. Tölur af alnetinu sýna hvernig varnarbarátta þessara siðblindingja lítur út:
191+ Israeli civilians killed
5,000–8,000 Lebanese civilians killed
Lebanese sources: 15,000–20,000 killed, mostly civilians.“
Segist Jódís fordæma þjóðarmorð Ísraela, sem og stuðning Bandaríkjanna og meðvirkni heimsbyggðarinnar:
„Ég fordæmi þjóðarmorð Ísraela, ég fordæmi BNA fyrir að næra þessa stríðsvél áratugum saman, ég fordæmi meðvirkni heimsbyggðarinnar með Ísrael og getuleysi okkar allra til að stöðva þann hrylling sem þögn okkar viðheldur dag eftir dag!“
Með færslunni birtir Jódís vísu eftir hagyrðinginn Jón Björnsson heitinn frá Borgarnesi sem hljóðar eftirfarandi:
Í Beirút liggja nú líkin í hrönnum
og Líbanon stynur af hryggð.
Vor einlæga samúð með Ísraelsmönnum
er orðin að viðurstyggð.
Komment