
Í nótt voru fimm manns handteknir eftir að hleypt var af skotvopni á hótelherbergi í Reykjavík.
Lögreglan lagði hald á skotvopnið og er málið nú til rannsóknar.
Í Kópavogi var aðili handtekinn eftir stunguárás sem hann framdi með með eggvopni, en þetta kom fram í pósti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Þar segir einnig að fangageymslur lögreglu séu fullar eftir nóttina og að alls voru það 58 mál sem rötuðu á borð lögreglu frá klukkan 17 síðdegis í gær til klukkan 5 í morgun.
Nokkuð var um að ökumenn væru stoppaðir vegna gruns um ölvun við akstur og einn aðili er grunaður um sölu og dreifingu fíkniefna, eftir að lögregla fann ansi mikið magn eiturlyfja og réðufé við leit.
Komment