
Guðmundur GunnarssonMun aðstoða Hönnu Katrínu ráðherra.
Mynd: Stjórnarráðið
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur ráðið Guðmund Gunnarsson sem aðstoðarmann en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu
Guðmundur er með BA gráðu í fjölmiðlafræði frá Háskólanum á Akureyri og meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum í Reykjavík.
Guðmundur hefur starfað sem framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar en var áður bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og frétta- og dagskrárgerðarmaður hjá Rúv og Fréttablaðinu. Guðmundur var jafnframt oddviti Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi í Alþingiskosningunum 2021.
Guðmundur mun starfa við hlið Stefaníu Sigurðardóttur sem hefur starfað sem aðstoðarmaður ráðherra frá ársbyrjun.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment