
Fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Sigurður Kári Kristjánsson, vill meina að Flokkur fólksins fái ekkert fyrir sinn snúð varðandi þinglok, sem voru með dramatískara móti þetta árið.
Sigurður Kári segir að ef það sé rétt að „samningar um þinglok hafi náðst á þeim nótum sem kynntir hafa verið í fréttum“ liggi það í augum uppi „að Flokkur fólksins fékk ekkert út úr þeim samningum.“

Hann færir í tal að í þinglokasamningnum felist það að „Viðreisn fær að hækka skatta á sjávarútvegsfyrirtækin í landinu með dyggum stuðningi Samfylkingarinnar.“
Bætir við:
„Frumvarp um jöfnunarsjóð sveitarfélaga, sem ágæt sátt virðist vera um, verður klárað, auk þess sem fólki verður veittur ríkisborgararéttur, eins og alltaf við þinglok“ og þess utan verður „fjármálaáætlun kláruð, eins og lög áskilja og allir hafa skilning á. Önnur mál verða ekki kláruð. Þau falla niður dauð.“

Telur Sigurður Kári að „ríkisstjórnin“ sé varla ánægð með „þennan samning, enda eftirtekjan ekki mikil“ og hann bætir því við að „ríkisstjórnin fær í raun afar lítið út úr þessum samningi miðað við allt sem lagt var í sölurnar, sérstaklega með beitingu kjarnorkuákvæðis þingskapa. Allt var það á endanum vanhugsað, gert af litlu tilefni og fyrir lítið.“
Hann telur „ríkisstjórnin [hafi] fengið lítið út úr þessum samningum“ og því hljóti „niðurstaðan að vera hreint áfall fyrir Flokk fólksins og kjósendur hans, því Inga Sæland náði engum árangri í þessum samningaviðræðum.“

Sigurður Kári dregur saman niðurstöðu sína út frá eigin pælingum og stefnu:
„Niðurstaða samninganna þýðir að Kristrún og Þorgerður hafa ákveðið að fórna helstu baráttumálum Ingu Sæland og Flokks fólksins í samningum um þinglok, þ. á m. helstu kosningamálum Ingu og co um strandveiðar og breytingar á lífeyriskerfinu.“
Hann segir „kjósendur Flokks fólksins hljóta að vera vonsviknir“ að þurfa að sjá að „samstarfsflokkarnir, Samfylkingin og Viðreisn, umgangast flokkinn frekar sem hækju og hjálpargagn í þessu stjórnarsamstarfi, en sem raunverulegan og marktækan þátttakanda í samstarfinu.“
Nefnir dæmi:
„Það sést á því að Samfylkingin og Viðreisn voru ekki lengi að fórna helstu baráttumálum Flokks fólksins þegar það þjónaði hagsmunum þeirra“ og nefnir einnig að „forysta Flokks fólksins getur hins vegar ekki kennt samstarfsflokkunum í ríkisstjórn alfarið um ófarir sínar og stefnamála sinna.“

Guðmundur Ingi Kristinsson.
Að mati fyrrum þingmannsins er framganga ráðherra og þingmanna Flokks fólksins hafi verið með þeim hætti á síðustu dögum að flestum ef ekki öllum ætti „endanlega að vera orðið ljóst að Flokkur fólksins er ekki stjórntækur. Forystumenn flokksins hafa hvorki burði til að koma að landsstjórninni né virðast þeir vera í neinu jafnvægi til að koma að henni. Það sást t.d. á furðulegum yfirlýsingum Guðmundar Inga Kristinssonar, menntamálaráðherra, um meint valdarán stjórnarandstöðunnar í vikunni. Og ekki var hún mikið betri þvælan í Ingu Sæland um að stjórnarandstaðan vildi koma á því fyrirkomulagi hér á landi að fráfarandi valdhafar yrðu dregnir undir húsvegg og skotnir við stjórnarskipti.“
Sigurður Kári segir einnig að líklega hafi þingmaður flokksins, Sigurjón Þórðarson, klúðrað því síðan endanlega að Flokkur fólksins næði einhverjum af sínu málum fram við þessi þinglok með vanhugsuðum hótunum um að kjarnorkuákvæðinu yrði aftur beitt ef þingmenn stjórnarandstöðunnar voguðu sér að taka aftur til máls um veiðigjöld eða önnur umdeild frumvörp í þinginu.“
Hann segir að „nú liggur niðurstaðan fyrir. Flokkur fólksins, sem ekkert fékk fyrir sinn snúð, hlýtur að velta fyrir sér eigin stöðu í þessu stjórnarsamstarfi eftir atburði dagsins“ og nefnir einnig að „Kristrún og Þorgerður“ hljóti líka að „velta því fyrir sér í ljósi atburða síðustu daga, vikna og mánaða hversu lengi flokkar þeirra ætla halda áfram stjórnarsamstarfi við stjórnmálaflokk sem augljóslega er ekki stjórntækur.“
Sigurður Kári gefur Kristrúnu og Þorgerði Katrínu eitt ókeypis ráð að lokum - og tekur ekkert aukalega fyrir það:
„Þær ættu a.m.k. að hafa í huga að þessar uppákomur og ruglið í tengslum við fulltrúa Flokks fólksins eru að sínu leyti í boði Samfylkingarinnar og Viðreisnar. Það eru takmörk fyrir því hvað hægt er að bjóða almenningi upp á í þeim efnum.“
Komment