Fyrir skömmu fundust á annan tug stormmáva og hettumáva dauðir í fjöru við Blönduós en þetta kemur fram í tilkynningu frá MAST.
„Sýni voru tekin og í þeim greindist skæð fuglainflúensa af gerðinni H5N5. Sama gerð skæðrar fuglainflúensu H5N5 greindist einnig í kvenkyns önd sem fannst dauð á Sauðárkróki í síðustu viku. Þetta staðfestir Tilraunastöð Hí í meinafræði á Keldum í gær,“ segir í tilkynningu MAST.
Mast segir að um er að ræða fyrstu staðfestu smitin þetta haustið. Þessi gerð fuglainflúensuveiru, HPAI H5N5, hafi einnig greinist hérlendis síðasta vetur. Óljóst er hvort fuglarnir á Blönduósi hafi smitast af farfuglum eða hvort smit hafi leynst í villta íslenska fuglastofninum síðan í vor. Á þessu stigi máls er lítið vitað um útbreiðslu að sögn MAST.
„Áhættumatshópur mun endurmeta smithættu fyrir alifugla og aðra fugla í haldi í ljósi þessara greininga, en ljóst er að fuglaeigendur þurfa að tryggja öflugar smitvarnir við umgengni á sínum fuglahópum og vera vel vakandi fyrir sjúkdómseinkennum í fuglum eða óeðlilegum dauða í þeim.“
Matvælastofnun hvetur almenning til að tilkynna stofnuninni um veika og dauða fugla og villt spendýr sem það finnur og er veiðimenn hvattir til að sýna varkárni við veiðar og verkun villtra fugla.
Komment