
Forsætisráðherra Íslands hefur fengið bréf frá Ruslan Kutaev, forseta þjóðbandalags Kákasusbúa í Evrópu , þar sem hann lýsir „alvarlegum áhyggjum“ vegna brottvísunar hins rússneska Gadzhi Gadzhiev og fjölskyldu hans frá Íslandi í lok september.
Samkvæmt bréfi Kutaev hefur fjölskyldan tengsl við Ísland allt frá árinu 2017 þegar móðir, bróðir og systir Gadzhi fengu alþjóðlega vernd hér á landi. Þar er tekið fram að eiginkona hans, Mariyam Taimova, hafi fætt tvíbura með keisaraskurði 15. september 2025.
„Árið 2025 hinn 29. september voru Gadzhi og fjölskylda hans fjarlægð með valdi af heimili móður hans hér á landi en daginn eftir, 30. september, flutt til Króatíu með einkaþotu,“ segir í bréfinu.
Króatía hafi hins vegar ekki viljað taka á móti fjölskyldunni og tvíburarnir séu án skilríkja.
„Þetta er hræðileg glæpur!“
Kutaev fullyrðir að brottvísunin hafi sett fjölskylduna í lífshættu og að Gadzhiev hafi verið handtekinn í Zagreb 24. október og vistaður í brottvísunarstöð á meðan Mariyam sé ein í móttökumiðstöð fyrir hælisleitendur með tveggja ára gamlan son og mánaðar gamla tvíbura.
„Mariyam, sem náði ekki að jafna sig eftir fæðinguna, varð fyrir miklu sálrænu áfalli! Hún þarf tafarlausa aðstoð!“ skrifar hann og kallar málið „hræðilegan glæp“.
Fullyrðir að Ísland hafi brotið alþjóðalög
Í bréfinu eru talin upp að minnsta kosti níu alþjóðleg mannréttinda- og flóttamannasamningar sem Kutaev telur að íslensk stjórnvöld hafi brotið, þar á meðal:
- Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna
- Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna
- Sameiginlegar flóttamannareglur og mannúðarlög
- Genfarsáttmálann og samnings gegn pyntingum
„Flutningur konunnar aðeins 15 dögum eftir keisaraskurð er brot á læknisfræðilegum og mannúðlegum viðmiðum,“ segir í bréfi Kutaev.
Krefjast viðbragða frá Íslandi
Kutaev segir að hann hafi sent forsætisráðherra bréf þegar 1. október, en engin svör hafi borist.
„Líf þessarar fjölskyldu er í hættu! Við krefjumst tafarlausra aðgerða! Við krefjumst réttlætis!!! Við ætlum að sækjast eftir réttlæti,“ skrifar hann og segist ætla að fylgja málinu „til enda“.

Komment