1
Menning

Barnaveiki í Stykkishólmi

2
Fólk

Gersemi í Grafarvogi til sölu

3
Minning

Hallfríður Lilja Einarsdóttir er fallin frá

4
Minning

Birna Óladóttir er látin

5
Menning

GDRN með Kristmund Axel á heilanum

6
Heimur

14 ára stelpa látin eftir brjóstastækkunaraðgerð

7
Innlent

Nágrannaerjur fóru úr böndunum

8
Innlent

Veðrið lék landsmenn grátt

9
Innlent

Borgin endurnýjar samning sinn við Samtökin ’78

10
Innlent

Rafmagnshlaupahjól og bifreið lentu saman - Ökumaður kærður fyrir að vera með filmur

Til baka

Falskur söngur veislugesta truflaði nætursvefn

Manns leitað eftir vopnað rán í söluturni

Lögreglan að störfum í miðborginni Mynd/Lára Garðarsdóttir
Mynd: Lára Garðarsdóttir

Töluverð ölvun var í miðborg Reykjavíkur í nótt en frá 17:00 í gær til 05:00 í morgun voru 94 mál skráð í kerfi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en einn gistir fangageymslu eftir nóttina.

Lögreglan brást við tilkynningu vegna ósætti milli tveggja manna í Breiðholtinu. Endaði rifrildið þannig að annar maðurinn hafði í hótunum við hinn og framdi svo eignarspjöll á faratæki hans. Lögreglan kom á vettvang og tók framburð af mönnunum.

Í miðbæ Reykjavíkur var framið vopnað rán þar sem maður hafði ógnað starfsmanni söluturns með hníf. Komst þrjóturinn undan með eitthvað af fjármunum en starfsmann sakaði ekki. Lögreglan leitar mannsins enn.

Tveir veggjakrotarar voru nappaðir við að krota á vegg í Laugardalnum. Voru þeir handteknir og skýrsla tekin af þeim. Eiga þeir von á kæru vegna eignaspjalla fyrir krotið.

Alls voru 12 ökumenn handteknir víðsvegar á Höfuðborgarsvæðinu, fyrir akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna.

Þá barst lögreglu tilkynning vegna nágrannaerja í Breiðholtinu. Þegar lögregla mætti á vettvang höfðu átt sér stað handalögmál milli nágranna. Var framburður tekinn af aðilunum á vettvangi.

Að lokum greinir dagbók lögreglunnar frá tilkynningu sem barst vegna partýhávaða í Grafarholtinu, um miðja nótt. Tók tilkynnandinn sérstaklega fram hversu falskur söngur veislugesta væri. Svaraði lögreglan kallinu og bað gesti veislunnar að „hemja söngraddirnar og helst að geyma sönginn þar til í sturtunni, á kristilegri tíma, eins og það er orðað í dagbók lögreglunnar.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Glúmur hefur horft upp á „menn missa alla fjölskylduna í veðmálum“
Innlent

Glúmur hefur horft upp á „menn missa alla fjölskylduna í veðmálum“

Glúmur Baldvinsson er ekki hrifinn af veðmálastarfsemi og segir ákveðna hræsni ríkja í kringum starfsemina
Hiti á bilinu tíu til fimmtán stig
Innlent

Hiti á bilinu tíu til fimmtán stig

Rafmagnshlaupahjól og bifreið lentu saman - Ökumaður kærður fyrir að vera með filmur
Innlent

Rafmagnshlaupahjól og bifreið lentu saman - Ökumaður kærður fyrir að vera með filmur

Hallfríður Lilja Einarsdóttir er fallin frá
Minning

Hallfríður Lilja Einarsdóttir er fallin frá

Gersemi í Grafarvogi til sölu
Myndir
Fólk

Gersemi í Grafarvogi til sölu

Borgin endurnýjar samning sinn við Samtökin ’78
Innlent

Borgin endurnýjar samning sinn við Samtökin ’78

Veðrið lék landsmenn grátt
Myndir
Innlent

Veðrið lék landsmenn grátt

14 ára stelpa látin eftir brjóstastækkunaraðgerð
Heimur

14 ára stelpa látin eftir brjóstastækkunaraðgerð

GDRN með Kristmund Axel á heilanum
Menning

GDRN með Kristmund Axel á heilanum

Mesta hvassviðri sem komið hefur að landi í marga mánuði
Innlent

Mesta hvassviðri sem komið hefur að landi í marga mánuði

Nágrannaerjur fóru úr böndunum
Innlent

Nágrannaerjur fóru úr böndunum

Innlent

Glúmur hefur horft upp á „menn missa alla fjölskylduna í veðmálum“
Innlent

Glúmur hefur horft upp á „menn missa alla fjölskylduna í veðmálum“

Glúmur Baldvinsson er ekki hrifinn af veðmálastarfsemi og segir ákveðna hræsni ríkja í kringum starfsemina
Mesta hvassviðri sem komið hefur að landi í marga mánuði
Innlent

Mesta hvassviðri sem komið hefur að landi í marga mánuði

Hiti á bilinu tíu til fimmtán stig
Innlent

Hiti á bilinu tíu til fimmtán stig

Rafmagnshlaupahjól og bifreið lentu saman - Ökumaður kærður fyrir að vera með filmur
Innlent

Rafmagnshlaupahjól og bifreið lentu saman - Ökumaður kærður fyrir að vera með filmur

Borgin endurnýjar samning sinn við Samtökin ’78
Innlent

Borgin endurnýjar samning sinn við Samtökin ’78

Veðrið lék landsmenn grátt
Myndir
Innlent

Veðrið lék landsmenn grátt

Loka auglýsingu