
Meta, móðurfélag Facebook, reynir nú að þagga niður í fyrrverandi starfsmanni sem hefur sett fram ásakandi fullyrðingar í nýrri afhjúpunarbók. Samfélagsmiðlarisinn hefur fengið úrskurð um að banna höfundinum tímabundið að kynna ævisöguna eða tala illa um tæknifyrirtækið.
Málið hefur vakið athygli vegna þess að Mark Zuckerberg, forstjóri og helsti eigandi Meta, hefur haldið því fram að grunntilgangur Facebook sé að ýta undir tjáningarfrelsið.
Í bókinni Gálaust fólk, eða „Careless People: A Cautionary Tale of Power, Greed and Lost Idealism“, sem kom út á þriðjudag, segir Sarah Wynn-Williams frá reynslu sinni af því að starfa hjá Facebook frá 2011 til 2017.
Í bókinni eru meðal annars fullyrðingar um kynferðislega áreitni af hálfu Joel Kaplan, sem lengi hefur verið framkvæmdastjóri hjá fyrirtækinu, áberandi repúblikani og bandamaður Donalds Trump forseta, sem tók við sem yfirmaður alþjóðamála Meta fyrr á þessu ári.
Hún skrifaði einnig um Meta, sem þá var eingöngu þekkt sem Facebook, að fyrirtækið hefði kannað möguleikann á að komast inn á arðbæran kínverskan markað með því að sættast við ritskoðun stjórnvalda þar.
„Tillagan var sú að sem hluti af samningaviðræðum um að fyrirtækið kæmist inn á Kínamarkað, gætu gögn notenda í Hong Kong verið sett í spil,“ sagði Wynn-Williams í viðtali við NPR.
Hugmyndin var að merkja efni í Hong Kong eða Taívan sem dreifðist hratt, eða varð „viral“, og vísa því til ritskoðunaraðila til skoðunar, samkvæmt Wynn-Williams.
Meta fór með útgáfu bókarinnar fyrir gerðardóm og hélt því fram að bókin bryti gegn samningi um að tala ekki illa um fyrirtækið sem Wynn-Williams undirritaði þegar hún starfaði í alþjóðamálateymi fyrirtækisins.
Gerðardómstóll féllst í þessari viku á beiðni Meta um að banna Wynn-Williams að kynna bókina eða gera niðrandi yfirlýsingar um fyrirtækið.
Hún verður einnig að draga til baka fyrri gagnrýni á Meta eða stjórnendur þess, samkvæmt úrskurðinum, sem mun gilda þar til deilan verður leyst í einkagerðardómsferli.
„Þessi úrskurður staðfestir að ranga og ærumeiðandi bók Sarah Wynn-Williams hefði aldrei átt að gefa út,“ sagði Andy Stone, samskiptastjóri Meta, í færslu á X, áður Twitter.
„Það er ekkert leyndarmál að við höfðum áhuga á Kína; við könnuðum margar hugmyndir,“ sagði Stone.
„Vitið þið hvað gerðist ekki? Við byrjuðum ekki að bjóða þjónustu okkar í Kína.“
Komment