1
Landið

Erlendur ferðamaður festi jeppa sinn við Mælifell

2
Innlent

Margrét Löf ákærð í tengslum við andlát föður síns í Garðabæ

3
Heimur

Eldhættustig á Kanaríeyjum

4
Pólitík

Þorgerður Katrín fékk það óþvegið á Instagram

5
Innlent

Margrét er orðin dauðþreytt á kynþáttafordómunum

6
Pólitík

Varar þjóðina við: Trump ræður yfir gögnum Íslendinga

7
Landið

Leiðsögumaður bjargaði föstum jeppa við Mælifell

8
Peningar

Gjaldþrotaskiptum lokið eftir fjögur þúsund daga

9
Innlent

Matvælastofnun innkallar kleinuhringi

10
Heimur

Bróðir Liams og Noels ákærður fyrir nauðgun

Til baka

„Á Alþingi Íslands er rætt um að vísa ungum manni sem misst hefur fjölskyldu og vini í helförinni á Gaza úr landi fyrir að sletta málningu“

Urður Hákonardóttir segir skömm að því að Ísland sé í nokkru sambandi við Ísrael og vill að við slítum öllum tengslum við landið hið snarasta

Kristrún Trump Þorgerður Katrín
Donald, Kristrún og Þorgerður KatrínUrður segir það einfaldlega staðreynd að Ísrael fremji þjóðarmorð
Mynd: Samfylkingin

Urður Hákonardóttir segir skömm að því að Ísland sé í nokkru sambandi við Ísrael og vill að við slítum öllum tengslum við landið hið snarasta.

„Al­þjóða­lög eða lög­leysa?“ spyr hún í opnu bréfi „til Kristrúnar Frostadóttur og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur.“

Urður, sem er stílisti, búningahönnuður og tónlistakona, segir að það sé „erfitt að vera manneskja í þessum heimi þar sem samtíminn er orðinn dystópískur, finnst ykkur það ekki? Fasisminn fer vaxandi og samkennd dvínandi, það hefur verið rannsakað.“

Urður sér þó ekki bara myrkur og illsku í veröld okkar heldur einnig „fegurð“ í heiminum en hún segist nú um stundir hreinlega ekki „finna hana“ og það finnst Urði vera „eitthvað svo ótrúlega skakkt“ og að þessi vonda tilfinning sé eitthvað sem við „finnum það flest, ekki satt? Allavega þau okkar sem enn hafa samkennd.“

Urður bjóst ekki við því, frekar en flestir aðrir, að framið yrði þjóðarmorð á Gaza og að börnum yrði slátrað eins og búfénaði:

„Ég hélt, eins og margir að þegar það kæmi að börnum, yrði línan dregin. Varla getur fólk horft upp á saklaus börn drepin, svelt, þeim misþyrmt eða þau misnotuð?“ spyr hún og bætir því við að í „Bandaríkjunum mega háttsettir menn stunda mannsal og nauðga börnum án afleiðinga fyrir þá. Þeir eru jú svo sjarmerandi.“

Urður segir einnig að í „Ísrael mega menn hunsa alþjóðalög og svelta börn og skjóta þau í höfuðið á færi. Og öll hin löndin sem hafa skuldbundið sig til að halda uppi þessum alþjóðalögum kjósa að líta undan hryllingnum. Án afleiðinga, eða hvað?“

Hún spyr:

„Hverjar verða afleiðingar þeirrar lögleysu sem viðgengst á alþjóðavettvangi? Hvert verður gjald meðvirkninnar?“

Urður segir að „mörkin skekkjast meir og meir, ekki bara úti í heimi heldur líka hér heima. Gjaldið mun koma og það verður hátt. Ísrael brýtur ítrekað alþjóðalög, eru yfirlýstir stríðsglæpamenn og fremja þjóðarmorð fyrir allra augum.“

Hún spyr „hvernig ráðamenn heimsins fá það af sér að horfa upp á 90 börn vera svelt til dauða í beinni útsendingu á meðan matargjafir mygla í tonnavís í nokkurra kílómetra fjarlægð frá þeim fær mann til að missa alla trú á mennsku ráðamanna og kerfisins sem við lifum í.“

Urður segir að fimmta hvert barn á Gaza þjáist af vannæringu sem gerir um 200.000 börn og hún segir einnig að það sé ekki bara „Ísrael sem brýtur alþjóðalög, heldur öll þau ríki sem hafa skuldbundið sig til að fylgja Þjóðarmorðssáttmálanum (Convention on the Prevention and Punishment of the Crime of Genocide (CPPCG)) sem gerður var að alþjóðalögum 9. desember 1948.“

Sáttmáli þessi var gerður til þess að forða nákvæmlega því sem á sér stað á „Gaza frá því að gerast“ og að „skuldbinding við sáttmálann felur í sér að bregðast við og aðhafast verði maður vitni að eða hafi vitneskju um að viðlíka atburðir séu að eiga sér stað.“

Hún bendir á þá staðreynd að „Ísland, sem aðildaríki að sáttmálanum, ber lagalega skyldu til að aðhafast.“

Og Urður spyr forsætisráðherra og utanríkisráðherra hvort skilja megi „aðgerðarleysi ykkar sem svo að Íslenskum stjórnvöldum finnist þau eins og bandarískum, rússneskum og ísraelskum stjórnvöldum, hafin yfir alþjóðalög eða stætt á að hunsa þau?“

Hún bendir á að „þetta aðgerðarleysi grefur undan stoðum þess reglukerfis sem alþjóðasamfélagið byggir á og smættar gildi alþjóðalaga“ og spyr einnig „hvers virði eru lög og reglur? Hvernig eigum við borgarar heimsins að hafa trú á kerfinu sem við lifum í þegar ráðamenn hunsa þau lög og reglur sem þeir hafa svarið eið um og skuldbundið sig til að fylgja.“

Að mati Urðar er tjáningarfrelsið orðið misskipt og hún segir að „almúginn mætir víðsvegar alvarlegum afleiðingum tjái þau sig frjálslega. Á meðan ráðamenn mega tjá sig með hætti sem hingað til hefur verið ástæða til afsagnar þeirra úr starfi. Friðsamlegum mómælendum víðsvegar um heim og hér heima er mætt með ofbeldi sem réttlætt er með gaslýsingum um óréttmæti afstöðu mótmælenda. Á Alþingi Íslands er rætt um að vísa ungum manni sem misst hefur fjölskyldu og vini í helförinni á Gaza úr landi fyrir að sletta málningu.“

Segir Urður að margir íslenskir stjórnmálamenn hafi gert „stærri mistök, meira að segja oft og ítrekað. Sumir þeirra hafa framið lögbrot án afleiðinga; hvað þá alvarlegra afleiðinga. Ungur maður slettir málningu á ljósmyndara og þingheimur fer á hliðina.“

Hún segir að á „Gaza mæta ljósmyndarar og blaðamenn öðru og verra en málningarslettum. Þeir eru pyntaðir og myrtir af Ísraelsher. En það virðist ekki fara jafn mikið fyrir brjóstið á íslenskum ráðamönnum. Kannski er þeim fyrirmunað að setja sig í spor þessa unga manns sem hlaut skjól hér á landi. Þess vegna er málning og glimmer kannski það hræðilegasta sem þeim dettur í hug? Því þau hafa ekki lent í því verra.“

Hún ljær máls á því að á sama tíma og „meintur nauðgari og barnaníðingur, yfirlýstur kvenhatari og rasisti vann forsetakosningar í Bandaríkjunum fengum við á Íslandi kvenstjórn. Tveir andstæðir pólar, vona ég.“

Hún segist oft „í gegnum tíðina velt því fyrir mér hvernig málum væri háttað ef heiminum væri stjórnað af konum. Hvort það væri farsælla og því fylltist ég eftirvæntingu að sjá hvort það yrði sannleikurinn. Konur sem ég hitti í kjölfar kosningana, á öllum aldri og úr öllum kimum samfélagsins, upplifðu svipaða eftirvæntingu. Mun það breyta einhverju að konur sitji við stjórnvölinn?“

Urður spyr af hverju Ísland sé ekki búið að slíta öllu sambandi við Ísrael:

„Þið, sem vermið æðstu sæti ríkisstjórnar Íslands, af hverju slítið þið ekki stjórnmála og viðskiptasambandi við Ísrael? Hvaða hagsmunum Íslands stafar hætta af þeirri aðgerð? Er Ísland háð meðvirkni með sjarmerandi barnaníðingi, er hann sá sem við viljum ganga í augun á? Og fyrir hvað? Fyrir hvað standa íslenskir stjórnmálamenn?“

Urður færir í tal að heimurinn hafi minnkað með tilkomu netsins og að „við erum ekki eingöngu borgarar landsins sem við búum í. Við tilheyrum líka alþjóðasamfélaginu og í reynd mannkyninu öllu. Viljið þið verja hagsmuni peninga eða fólks?“ spyr hún og bætir því við að „þið hafið sagt að ef aðrir bregðist við þjóðarmorðinu á Gaza munuð þið fylgja. Af hverju ekki að taka af skarið og vera boðberar kærleika, friðar og samkenndar. Ekki sveiflast eins og strá í vindi eftir því hvert stærstu hrekkjusvín heimsins blása. Það er ekki svo langt síðan við vorum undir hælnum á annarri þjóð, blessunarlega þurftum við ekki að upplifa þann hrylling sem palestínskt fólk lifir og deyr við.“

Urður beinir enn og aftur orðum sínum til Kristrúnar og Þorgerðar og segir:

„Verið fyrirmyndir ungra íslendinga og fylgið lögum og reglum. Þið krefjist þess af okkur borgurunum og ég krefst þess af ykkur. Þið eruð forsvarsmenn þjóðarinnar. Verum þjóðin sem gerir hlutina öðruvísi, sýnum sjálfstæði og þor. Sýnum samkennd og náungakærleika. Sýnum frumkvæði og búum hinum löndunum sem líka bíða eftir að einhver taki af skarið farveg til að taka afstöðu með börnum, með friði, með mannslífum, gegn þjóðarmorði, gegn spillingu og gegn lögleysu.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment


Gjaldþrotaskiptum lokið eftir fjögur þúsund daga
Peningar

Gjaldþrotaskiptum lokið eftir fjögur þúsund daga

Það tók langan tíma að afgreiða endanlega gjaldþrot BS Turn ehf. og ekkert fékkst upp í kröfur
Margrét er orðin dauðþreytt á kynþáttafordómunum
Innlent

Margrét er orðin dauðþreytt á kynþáttafordómunum

Þorgerður Katrín fékk það óþvegið á Instagram
Pólitík

Þorgerður Katrín fékk það óþvegið á Instagram

Varar þjóðina við: Trump ræður yfir gögnum Íslendinga
Pólitík

Varar þjóðina við: Trump ræður yfir gögnum Íslendinga

Margrét Löf ákærð í tengslum við andlát föður síns í Garðabæ
Innlent

Margrét Löf ákærð í tengslum við andlát föður síns í Garðabæ

Matvælastofnun innkallar kleinuhringi
Innlent

Matvælastofnun innkallar kleinuhringi

„Þegar samfélag er kerfisbundið lagt í rúst dugar ekki að dreifa matarpökkum“
Heimur

„Þegar samfélag er kerfisbundið lagt í rúst dugar ekki að dreifa matarpökkum“

Leiðsögumaður bjargaði föstum jeppa við Mælifell
Myndband
Landið

Leiðsögumaður bjargaði föstum jeppa við Mælifell

Lögreglan leitar að ungri stúlku sem varð fyrir bíl Akureyri
Innlent

Lögreglan leitar að ungri stúlku sem varð fyrir bíl Akureyri

Erlendur ferðamaður festi jeppa sinn við Mælifell
Landið

Erlendur ferðamaður festi jeppa sinn við Mælifell

Bróðir Liams og Noels ákærður fyrir nauðgun
Heimur

Bróðir Liams og Noels ákærður fyrir nauðgun

Innlent

Margrét er orðin dauðþreytt á kynþáttafordómunum
Innlent

Margrét er orðin dauðþreytt á kynþáttafordómunum

„Móðir mín hefur ítrekað þurft að þola niðurlægingu og fordóma vegna þess hvernig hún lítur út.“
Landeigandi og fjórhjólafólk tókust á við eldgosið
Innlent

Landeigandi og fjórhjólafólk tókust á við eldgosið

Margrét Löf ákærð í tengslum við andlát föður síns í Garðabæ
Innlent

Margrét Löf ákærð í tengslum við andlát föður síns í Garðabæ

Matvælastofnun innkallar kleinuhringi
Innlent

Matvælastofnun innkallar kleinuhringi

„Á Alþingi Íslands er rætt um að vísa ungum manni sem misst hefur fjölskyldu og vini í helförinni á Gaza úr landi fyrir að sletta málningu“
Innlent

„Á Alþingi Íslands er rætt um að vísa ungum manni sem misst hefur fjölskyldu og vini í helförinni á Gaza úr landi fyrir að sletta málningu“

Lögreglan leitar að ungri stúlku sem varð fyrir bíl Akureyri
Innlent

Lögreglan leitar að ungri stúlku sem varð fyrir bíl Akureyri

Loka auglýsingu