
Tilkynnt var um eignaspjöll þar sem aðili hafði kastað flösku í rúðu og hún brotnað. Lögregla sinnti og málið var afgreitt á vettvangi.
Þá var tilkynnt um líkamsárás í miðborginni, fór lögregla og sinnti og nú er málið í rannsókn.
Þrír ökumenn voru teknir höndum grunaðir um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, þar með talið áfengi. Voru ökumenn fluttir á lögreglustöð í hefðbundið ferli.
Tilkynnt um eld í hesthúsi í Hafnarfirði; lögregla og slökkvilið fóru á vettvang og var talverður eldur í þaki hússins og stendur vinna á vettvangi enn yfir.
Tilkynnt um þjófnað í verslun í Kópavogi og var málið afgreitt á vettvangi.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu við að fjarlægja aðila af ölstofu í Kópavogi og gekk það vel og aðilinn gekk sína leið, tilbaka.
Tilkynnt var um mann að kasta húsgögnum fram af svölum og var hann handtekinn og vistaður í fangaklefa.
Ökumaður var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, þar ámeðal áfengis. Í ljós kom að hann var einnig sviptur ökuréttindum sínum og því fluttur á lögreglustöð í hefðbundið ferli.
Annar ökumaður var handtekinn eftir að hafa reynt að flýja lögreglu og breut ökumaðurinn braut talsvert mörg umferðarlagabrot og má eiga von á sekt og sviptingu ökuréttinda. Ökumaðurinn var látinn laus að skýrslutöku aflokinni.
Komment