1
Minning

Séra Yrsa Þórðardóttir er fallin frá

2
Fólk

Bjarni Ben opnar sig um sína helstu ástríðu

3
Peningar

Mjölnir blæðir milljónum

4
Innlent

Morðmál Margrétar Löf sett á dagskrá

5
Minning

Uggi Þórður Agnarsson látinn

6
Innlent

Lögreglan varar við Skattsvikurum

7
Peningar

Mikið tap hjá Svövu í Sautján á síðasta ári

8
Fólk

Verðlaunahús til sölu á 380 milljónir

9
Innlent

Lagði bílnum á vatnsskúlptúr í Hafnarstræti

10
Heimur

Dæmdur fyrir að áreita 46 börn á Kanaríeyjum

Til baka

„Ég var ekkert eðlilega leiðinleg við hann fyrst”

Hann beilaði á fyrsta deitinu og það tók hann marga mánuði að laga það

Gurrý
Gurrý með maka sínumGurrý opnar sig í nýjasta hlaðvarpsviðtali Sölva Tryggva.
Mynd: Instagram-skjáskot

Gurrý Torfadóttir einkaþjálfari segist innilega þakklát fyrir þann stað sem hún er á í dag eftir að hafa farið í gegnum mjög erfið ár í kjölfar skilnaðar og fyrirtækjareksturs í Covid. Gurrý, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar, segist hafa verið á þeirri vegferð að þroskast og heilast á undanförnum árum. Það geti verið erfitt á köflum, en verðlaunin séu mikil:

„Mér líður mjög vel og ég er á frábærum stað núna. Það er auðvelt að tala um lífsreynslu og deila af henni þegar manni líður vel. En síðustu 10 árin eru alveg búin að vera erfið á löngum köflum. En ég hef verið mjög dugleg og alltaf haldið áfram á erfiðustu köflunum. Jóga hefur verið mikið haldreipi fyrir mig. En ég er í raun búin að vera á þeirri vegferð að þroskast og heilast. Og ég er svo innilega þakklát fyrir fólkið í kringum mig. Á á svo brjálæðislega góðar vinkonur, sem eru bæði skilningsríkar og þroskaðar og hafa hjálpað mér rosalega. En auðvitað á maður eitthvað sjálfur í því að raða réttu fólki í kringum sig,” segir Gurrý, sem talar í þættinum opinskátt um þá kafla sem hafa reynst henni erfiðastir:

„Það var mjög erfitt þegar ég hætti í Reebook fitness, en kannski erfiðasta tímabilið var þegar Covid skall á. Ég var að skilja eftir langt samband, var nýbúin að opna líkamsræktarstöð og ég hreinlega sá bara ekki út. Ég er í eðli mínu hörð við sjálfa mig, þannig að ég leyfði mér ekkert að sleppa úr vinnu eða hætta öllu, alveg sama hvað dagarnir voru erfiðir. En það sem hélt mér gangandi á erfiðustu dögunum var fólkið í kringum mig og geta alltaf tekið símtalið þegar ég var á erfiðum stað og muna að þessi dagur líður alltaf og á morgun verður betri dagur. En á allra erfiðustu dögunum á þessu tímabili þurfti ég oft að hugsa bara 15-30 mínútur fram í tímann og hvíla mig þegar ég gat ekki meira. Það að fara í gegnum skilnað er ekkert grín og þegar ég heyri af fólki sem er að ganga í gegnum skilnað sé ég núna hvað það getur verið erfitt ferli. Það skiptir engu máli hver biður um skilnaðinn. Svo þegar mér fór að líða aðeins betur var það hreyfingin sem skipti sköpum og svo að fá aðstoð frá ráðgjafa og tala við einhvern og svo jóga og öndunaræfingar. Ég var allan tímann ákveðin í að komast út úr þessu og það tókst. Þegar maður horfir í baksýnisspegilinn sé ég hvað þetta tímabil þroskaði mig mikið og hvað ég lærði mikið þarna.”

Gurrý segist vilja senda þau skilaboð til fólks sem er að ganga í gegnum erfið tímabil að það sé alltaf ljós við endann ef fólk heldur áfram:

„Og kannski verður lífið bara miklu betra en það var áður en þú fórst í gegnum erfiðleikana. Þannig er það hjá mér. Ég hefði ekki trúað því að ég myndi segja það, en það er bara staðan. Og það hefur ekkert með fyrrverandi maka minn að gera, heldur bara þá vinnu sem ég hef lagt í sjálfa mig. Þegar fólk fer í gegnum sársaukafull og erfið ferli verður maður að muna að þetta verður betra. Og líka ná að njóta fallegu augnablikanna inni í þessum tímabilum, af því að þau eru alltaf þarna líka,” segir Gurrý sem er í ástarsambandi í dag sem hún segist mjög hamingjusöm í og segir það hafa komið til sín þegar hún átti síst von á því.

„Það kom tímabil þar sem ég var að bíða eftir því að finna einhvern geggjaðan mann. Ég hélt að einu ári eftir skilnaðinn myndi ég finna þann eina rétta, en svo gerðist það bara ekkert. Svo þegar ég var alveg búin að sleppa tökunum af því, þá gerðist það. Ég var ekkert eðlilega leiðinleg við manninn sem ég er með í dag fyrst um sinn, af því að ég var bara búin að ákveða að ég gæti alveg verið ein. Hann beilaði á fyrsta deitinu og það tók hann nokkra mánuði að ná að laga það. En allt er eins og það á að vera og maður er alltaf að sjá það betur.”

Gurrý hefur á undanförnum árum einbeitt sér að því að vinna með konum þegar kemur að heilsu og hún hefur áhyggjur af þeim hraða sem er í samfélaginu og þeirri pressu sem konur setja á sig, í stað þess að setja á sama tíma athyglina á það sem vel er gert:

„Ég vinn mikið með konum og ég hef áhyggjur af þessarri brjáluðu keyrslu og pressu sem virðist vera gegnumgangandi heilt yfir. Ég er kannski með konur sem eru að standa sig frábærlega vel og gera góða hluti í vinnu og sem mæður, en aðalatriðið eru einhver tvö aukakíló sem þær setja alla athyglina á. Aðalatriðið er að okkur líði vel, að við séum í jafnvægi og að taka eftir góðu og jákvæðu hlutunum, en ekki að rífa okkur niður fyrir eitthvað sem í stóra samhenginu er í raun algjört aukaatriði.”

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Tæplega 700 án vinnu í meira en 18 mánuði
Innlent

Tæplega 700 án vinnu í meira en 18 mánuði

Ekki er gefið upp hversu margir þiggja bætur
Gæsluvarðhald yfir leikskólastarfsmanninum framlengt enn og aftur
Innlent

Gæsluvarðhald yfir leikskólastarfsmanninum framlengt enn og aftur

Endaraðhús á Seltjarnarnesi með stórfenglegu útsýni
Fólk

Endaraðhús á Seltjarnarnesi með stórfenglegu útsýni

Eva lýsir alvarlegu slysi hjólreiðamanns
Innlent

Eva lýsir alvarlegu slysi hjólreiðamanns

Auto ehf. skuldar 16 milljónir í dagsektir
Landið

Auto ehf. skuldar 16 milljónir í dagsektir

Dagur fagnar ástinni með rómantískri færslu
Fólk

Dagur fagnar ástinni með rómantískri færslu

Drónaárásir gerðar á fjölda hjálparbáta á leið til Gaza
Myndband
Heimur

Drónaárásir gerðar á fjölda hjálparbáta á leið til Gaza

Mikið tap hjá Svövu í Sautján á síðasta ári
Peningar

Mikið tap hjá Svövu í Sautján á síðasta ári

Blómin á þakinu er uppáhalds barnabók forsætisráðherra
Fólk

Blómin á þakinu er uppáhalds barnabók forsætisráðherra

Eldamennska fór úr böndunum
Innlent

Eldamennska fór úr böndunum

Morðmál Margrétar Löf sett á dagskrá
Innlent

Morðmál Margrétar Löf sett á dagskrá

Sérfræðingar SÞ hvetja FIFA til að banna Ísrael
Sport

Sérfræðingar SÞ hvetja FIFA til að banna Ísrael

Blaðamenn nefna leyniþjónustumennina á bakvið dauða Navalny
Heimur

Blaðamenn nefna leyniþjónustumennina á bakvið dauða Navalny

Fólk

Endaraðhús á Seltjarnarnesi með stórfenglegu útsýni
Fólk

Endaraðhús á Seltjarnarnesi með stórfenglegu útsýni

Húsið stendur við óbyggt friðland
Fangar ánægðir með Jóa Fel
Fólk

Fangar ánægðir með Jóa Fel

Dagur fagnar ástinni með rómantískri færslu
Fólk

Dagur fagnar ástinni með rómantískri færslu

Blómin á þakinu er uppáhalds barnabók forsætisráðherra
Fólk

Blómin á þakinu er uppáhalds barnabók forsætisráðherra

Bjarni Ben opnar sig um sína helstu ástríðu
Fólk

Bjarni Ben opnar sig um sína helstu ástríðu

Verðlaunahús til sölu á 380 milljónir
Myndir
Fólk

Verðlaunahús til sölu á 380 milljónir

Loka auglýsingu