1
Innlent

Drukkin börn við grunnskóla

2
Minning

Magnús Kristinn Eyjólfsson, landsliðsþjálfari í kata, látinn 54 ára að aldri

3
Minning

Jóhann Friðrik Antonsson er fallinn frá

4
Innlent

Boðar til mótmæla fyrir ríkisstjórnarfund og hvetur til stuðnings í Reykjavíkurmaraþoninu

5
Mannlífið

Kaffivagninn opnar aftur í breyttu útliti

6
Innlent

Sólveig Anna hjólar í borgarstjóra vegna leikskólastarfsmannsins

7
Menning

Geggjuð stemmning á Ingólfstorgi í dag

8
Heimur

Þekktur íssali stunginn til bana fyrir framan bíl sinn

9
Innlent

Stór hluti ákæru felldur niður í máli Shamsudin-bræðra

10
Innlent

„Ég get skellt mér í Kópavogslaug og kallað mig Keikó en það gerir mig ekki að hval”

Til baka

„Ég get skellt mér í Kópavogslaug og kallað mig Keikó en það gerir mig ekki að hval”

Kennari segir það hafa einungis verið „tímaspursmál” hvenær stjórnmálamenn kæmu fram og gerðu tilraun til að eyðileggja Matsferil, væntanlegt mælitæki MMS

Ragnar Þór Pétursson
Ljósmynd: Facebook
Ragnar Þór PéturssonGagnrýnir bæjarstjórann í Kópavogi harðlega

Kennarinn Ragnar Þór Pétursson segir það hafa einungis verið „tímaspursmál” hvenær stjórnmálamenn kæmu fram og gerðu tilraun til að eyðileggja Matsferil, væntanlegt mælitæki MMS.

Hann er afar ósáttur og segir að „skólarnir fengu ekki einu sinni að byrja áður en bæjarstjórinn í Kópavogi var stokkinn fram á völlinn og hrópaði af Hamraborginni að í hans bæ héti mælitækið samræmt próf, sem eins og nafnið gefur til kynna, væri í senn bjarghringur og markúsarnet sökkvandi skólakerfis.”

Þetta finnst Ragnari ekki vera vænleg leið til vinnings og segir að „bæjarstjórinn hefur hugsað sér að verða einhvers konar Víglundur verkstjóri menntakerfisins. Inni á kontór á bæjarskrifstofunni ætlar hann að sitja haukfránn með bæði augun á teljurunum sem mæla öll mikilvæg handtök og allar hugsanir sem ná máli í skólum bæjarins. Tími slugsanna er liðinn því bæjarstjórinn boðar að loks sé stiginn fram bæjarstjórn sem raunverulega hafi áhuga á menntamálum og muni vaka yfir kennurum með foreldrasamfélagið á háhesti.”

Ragnarsegir einnig að „Kópavogspólitíkin er líka búin að finna lausn á kennaraskorti – og hefur áttað sig á því að þú þarft eiginlega enga kennara ef búið er að ákveða hvað eigi að kenna, hvenær og hvar. Það sé eiginlega nóg að ákveða að miðvikudaginn 24. september skuli öll ellefu ára börn í sveitarfélaginu öðlast skilning á því hver sé munurinn á atviksorði og lýsingarorði. Það mætti jafnvel hugsa sér að í horni hverrar stofu í hverjum skóla verði settur upp skjár og hátalari og svo birtist bæjarstjórinn í öllu sínu veldi þar sem hann þylur upp lexíurnar. Síðan má henda krökkunum í próf í Námfúsi og bæjarstjórinn hallar sér svo aftur og horfir á mælanna.”

Ragnar talar um þversagnir og íslenskt frjálslyndi.

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs.

„Bæjarstjórnin í Kópavogi þykist vera frjálslynd. En það er íslenskt frjálslyndi. Þversagnarkennt frjálslyndi. Það er frjálslyndi þeirra sem vilja til dæmis ekki leyfa frjálsar veiðar á fiski vegna þess að slík samkeppni leiði til þess að ágóðinn verði minni því stöðugt muni þurfa að fórna gróða fyrir samkeppnisstöðu.”

Hann bætir því við að „bæjarstjórinn áttar sig engan veginn á því að afleiðing þess að misnota með þessum hætti matsferil eru alvarlegar. Og það er óþarfi. Vel þekkt staðreynd um íslenskt skólakerfi að sú að fleiri nemendur tóku þátt í lesferli - sem ekki var skylda - en samræmdum prófum - sem voru skylda.”

Hann færir í tal að i „Kópavogi hefur heillengi verið hægt að beita snemmtækri íhlutun vegna nemenda út frá niðurstöðum í lesferli og mati í 4. og 7. bekk. Það er ekkert sem skyndilega verður nú hægt að gera vegna þess að bæjarstjórinn vill ganga í augun á vindbelgjum og gefa þeim samræmdu prófin sín. Ég get skellt mér í sund í Kópavogslaug og kallað mig Keikó en það gerir mig ekki að hval.”

Hann nefnir einnig að „bæjarstjórinn í Kópavogi getur látið sem matsferill sé það sama og samræmd próf en prófin munu samt ekki prófa með brotabrot af því sem því sem foreldrar í Kópavogi halda að um sé að ræða. Það sem mun hins vegar örugglega gerast er þetta:

Slakir nemendur, nemendur með greiningar, nemendur af erlendum uppruna, nemendur sem mest þurfa á skólanum sínum að halda munu ekki vera sérlega velkomnir í bekki eða skóla.”

Ragnar segir að „slíkir nemendur eiga á hættu, eðli máls samkvæmt, að lenda röngu megin meðaltals og það verður enginn sérstakur áhugi á því að fá slíka nemendur inn í stofu þar sem þorskhausateljari bæjarstjórans tikkar – til þess að bæjarstjórinn geti síðan sent foreldrum viðkomandi bekkjar bréf og sagt að meðaltalið þar sé ekki gott.”

Hann færir í tal að „jaðarsetning viðkvæmra nemenda er á öllum tímum og í öllum löndum afleiðing menntapólitíkur eins og þeirrar sem Kópavogur er að setja á dagskrá. Þá munu prófin skerða nám. Alveg eins og útgerðarmaður myndi kaupa þotuhreyfil og mylja örvandi efni út í skipskostinn ef hann væri að keppa við aðra í fullkomnu samkeppnisumhverfi, munu áherslur skóla í Kópavogi færast inn á það sem er mælt.”

Hann segir líka að það sé „fjölmargt sem MMS er ekki að fara að mæla með matsferli og getur ekki mælt – og það var aldrei hugmyndin að hann yrði að einhverskonar þungamiðju alls náms. Það mun samt gerast þegar skólar verða settir í gapastokka á grundvelli þessa einfalda mælitækis. Þetta er álíka gáfulegt og að setja rimla í skólastofurnar og segja nemendum að naga þá því bæjarstjórinn hefur frétt það einhversstaðar að járn sé gott fyrir blóðið. Loks mun Kópavogur tapa stöðu sinni sem leiðandi sveitarfélag á landsvísu.”

Ragnar segir að skólarnir í Kópavogi séu góðir og að þeir hafi lengi verið góðir.

„Nemendur voru mjög háir á samræmdum prófum en ekki vegna þess að bæjarstjórinn hefði misst vitið og krýnt sig einræðisherra menntunar – heldur vegna þess að þar hafa farið saman góðir skólamenn, góðir foreldrar og góð börn. Oft hafa kennarar í nágrannasveitarfélögunum horft yfir lækinn og hugsað sér að það sé gott að kenna í Kópavogi. Bæjarstjórinn er í einhverskonar herferð til að sjá til þess að svo verði ekki. Í stað þess ætlar hún að breyta stöndugum og rótgrónum skólum í ómerkilegar niðursuðuverksmiðjur. Það mun skólafólk ekki láta bjóða sér og ef bæjarstjórinn fær ekki uppreisn beint í andlitið … þá gerist aðeins eitt. Fólkið sem raunverulega hefur vit á menntamálum og hæfni á því sviði mun þakka fyrir sig og yfirgefa sviðið.”

Ragnar nefnir að endingu að „svona skrípaleikur er fyrir neðan virðingu góðra skóla. Góðir skólar eru ekki sjálfsagðir og góð menntun er það ekki heldur og það þarf ekki marga vonda stjórnmálamenn til að skemma hvort tveggja. Ég vona að Kópavogsleiðinn leggi ekki fúla leið sína yfir fleiri sveitarfélög en óttast það versta. Það er enginn skortur á vondum stjórnmálamönnum á Íslandi.”

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment


Opnunarveisla Bryggjuhússins að hefjast
Mannlífið

Opnunarveisla Bryggjuhússins að hefjast

Brauðtertur, búbblur og bjór í boði á meðan byrgðir endast
Gagnrýnir bæjarstjóra Kópavogs fyrir villandi kynningu á stöðuprófum
Pólitík

Gagnrýnir bæjarstjóra Kópavogs fyrir villandi kynningu á stöðuprófum

Segir lögreglu ætla að kæra: „Veit ekki hvaðan hann hefur þessar upplýsingar“
Innlent

Segir lögreglu ætla að kæra: „Veit ekki hvaðan hann hefur þessar upplýsingar“

Brasílískur áhrifavaldur varð fyrir bíl á þjóðveginum
Heimur

Brasílískur áhrifavaldur varð fyrir bíl á þjóðveginum

Magnús Kristinn Eyjólfsson, landsliðsþjálfari í kata, látinn 54 ára að aldri
Minning

Magnús Kristinn Eyjólfsson, landsliðsþjálfari í kata, látinn 54 ára að aldri

Karl Ágúst birti áratugagamalt ljóð sem smellpassar við nútímann
Menning

Karl Ágúst birti áratugagamalt ljóð sem smellpassar við nútímann

Prís mun ódýrara ári eftir opnun
Peningar

Prís mun ódýrara ári eftir opnun

Aðjúnkt við HÍ segir stjórnvöld sitja aðgerðarlaus frammi fyrir þjóðarmorði
Innlent

Aðjúnkt við HÍ segir stjórnvöld sitja aðgerðarlaus frammi fyrir þjóðarmorði

Atli Vikar er fundinn heill á húfi
Innlent

Atli Vikar er fundinn heill á húfi

Sveitarfélögin á svæðinu leggjast gegn flokkun Hamarsvirkjunar í verndarflokk
Innlent

Sveitarfélögin á svæðinu leggjast gegn flokkun Hamarsvirkjunar í verndarflokk

Tímabundið skjól – einstök sýning í Bíó Paradís á sjálfstæðisdegi Úkraínu
Menning

Tímabundið skjól – einstök sýning í Bíó Paradís á sjálfstæðisdegi Úkraínu

„Við getum lært af öðrum”
Innlent

„Við getum lært af öðrum”

Stór hluti ákæru felldur niður í máli Shamsudin-bræðra
Innlent

Stór hluti ákæru felldur niður í máli Shamsudin-bræðra

Innlent

Segir lögreglu ætla að kæra: „Veit ekki hvaðan hann hefur þessar upplýsingar“
Innlent

Segir lögreglu ætla að kæra: „Veit ekki hvaðan hann hefur þessar upplýsingar“

Lög­reglu­menn eru sagðir hafa sagt við for­svarsmenn tveggja net­verslana með áfengi að þeir yrðu ákærðir fyrir verslunina en sjálf lögreglan kemur af fjöllum
„Við getum lært af öðrum”
Innlent

„Við getum lært af öðrum”

Aðjúnkt við HÍ segir stjórnvöld sitja aðgerðarlaus frammi fyrir þjóðarmorði
Innlent

Aðjúnkt við HÍ segir stjórnvöld sitja aðgerðarlaus frammi fyrir þjóðarmorði

„Ég get skellt mér í Kópavogslaug og kallað mig Keikó en það gerir mig ekki að hval”
Innlent

„Ég get skellt mér í Kópavogslaug og kallað mig Keikó en það gerir mig ekki að hval”

Atli Vikar er fundinn heill á húfi
Innlent

Atli Vikar er fundinn heill á húfi

Sveitarfélögin á svæðinu leggjast gegn flokkun Hamarsvirkjunar í verndarflokk
Innlent

Sveitarfélögin á svæðinu leggjast gegn flokkun Hamarsvirkjunar í verndarflokk

Loka auglýsingu