Eins og Mannlíf fjallaði um í gær kom upp atvik þar sem mótmælendur enduðu upp á húddi ökumanns sem var að keyra Lækjargötu. Deilt er um hver hafi verið í rétti.
Viðbrögðin á samfélagsmiðlum skiptast í tvo hópa. Sumir telja að svipta eigi ökumanninn bílprófinu fyrir hegðun sína meðan aðrir telja að mótmælendurnir geti ekki kennt neinum um nema sjálfum sér.
Sigrún Jónsdóttir hefur gefið sig fram sem ökumann bílsins og tjáði sig í gær um atvikið á samfélagsmiðlum.
„Ég átti leið um Lækjargötuna í morgun þegar hópur fólks með ótrúlegan dónaskap meinuðu mér að komast leiðar minnar á grænu ljósi,“ skrifar Sigrún um málið. „Ég keyrði alveg að manneskju sem plantaði sér fyrir framan bílinn hjá mér þannig ég komst ekki áfram..nema keyra yfir hana, hún gerði sér þá lítið fyrir og settist uppá bílinn ..ég skrúfaði niður rúðuna farþegamegin og bað um að fá að komast leiðar minnar og benti á græna götuljósið ..þegar einhver ruddi tróð sér inn í rúðuopið og argaði svo á mig og skipaði mér að ,,DRULLA MÉR Í BURTU" hann gargaði þetta svo hátt og aftur og aftur svo það frussaðist yfir mig viðbjóðurinn.“
Sigrún segir að tveir lögreglumenn hafi í kjölfarið komið og hjálpað henni að komast í burtu.
„Ég hef aldrei nokkurn tímann lent í annarri eins illsku í minn garð og heift eins og þessi vesalings orðljóti maður sýndi mér í morgun! Hins vegar hló konan á húddinu og virtist skemmta sér vel,“ heldur ökumaðurinn áfram og segist vera ennþá miður sín yfir þessari illsku.
„Hvernig endar þetta hérna hjá okkur á okkar fallega góða og friðsæla landi okkar? Ég er hugsi eftir þessa óhugnanlegu og ofstopa framkomu gagnvart mér í morgun!“ skrifar hún að lokum.

Komment