
Ungt barn sannaði fyrir barnapíu sinni að stundum eru skrímsli sannarlega falin undir rúminu.
Þann 24. mars í Grand Bend, Kansas, gerði barnapía óhugnanlega uppgötvun þegar hún rakst á mann, síðar auðkenndan af lögreglunni sem Martin Villalobos Jr., 27 ára, í felum undir rúmi eins af börnunum sem hún passaði.
Samkvæmt yfirlýsingu frá lögreglunni í Barton-sýslu, sem birt var á Facebook þann 26. mars, uppgötvaði unga konan Villalobos eftir að eitt barnanna kvartaði yfir „skrímslum“ og hún reyndi að sýna barninu að ekkert væri undir rúminu.
Hins vegar hafði barnið rétt fyrir sér.
„Hún kom augliti til auglitis við manninn sem var að fela sig þar,“ sagði í yfirlýsingunni um barnapíuna, sem ekki var nafngreind. „Upp úr sauð og eitt barnið féll í gólfið í átökunum. Svo flúði hinn grunaði vettvanginn áður en lögregla kom á staðinn.“
Barnapían gat hins vegar borið kennsl á manninn sem Villalobos, sem samkvæmt yfirlýsingu lögreglunnar hafði áður búið í húsinu. Honum hafði þó verið gert að halda sig fjarri eigninni með nálgunarbanni vegna ofbeldis.
Lögreglan mætti á vettvang um klukkan 22:30 að staðartíma eftir að hafa fengið tilkynningu um „truflun“. Þeir leituðu að Villalobos í nágrenninu en fundu hann ekki strax. Morguninn eftir sást hann aftur af lögreglu og reyndi að flýja fótgangandi en var handtekinn eftir stutta eftirför.
Villalobos var handtekinn og færður í fangelsi Barton-sýslu, þar sem hann var ákærður fyrir mannrán með hótunum, innbrot, líkamsárás, að stofna barni í hættu, að hindra störf lögreglu og brot á nálgunarbanni. Tryggingagjald hans var ákveðið 500.000 dalir eða ríflega 66 milljónir króna.
Samkvæmt skýrslu frá héraðsdómstólnum í Barton-sýslu var Villalobos handtekinn fyrr í þessum mánuði, þann 14. mars, fyrir brot á nálgunarbanni. Þá var tryggingaféð sett á 2.500 dali eða um 330 þúsund krónur.
E! News fjallaði um málið.
Komment