
Dr. Ingólfur Gíslason, sem er aðjúnkt við menntavísindasvið Háskóla Íslands, gagnrýnir harðlega viðbrögð íslenskra og vestrænna stjórnvalda við ástandinu á Gaza. Í færslu sem hann birti á Facebook segir hann að íslenskt mennta- og menningarfólk sé almennt á vinstri vængnum í stjórnmálum og telji jöfnuð, mannréttindi og velferð mikilvæga þætti. Samt sem áður hafi þessi hópur verið hikandi við að gagnrýna stjórnvöld fyrir skort á aðgerðum gagnvart Ísrael.
Ingólfur bendir á að ríkisstjórnin hafi setið aðgerðalaus mánuðum saman þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar um áhyggjur af ástandinu á Gaza. Yfirlýsingar um þjóðarmorð, sem gefnar voru út fyrir kosningar, hafi jafnvel verið dregnar til baka. Hann segir orðræðuna litaða af ásökunum í garð Palestínumanna sjálfra, þar sem hryllingurinn sé fordæmdur en ábyrgðin færð á Hamas.
Í færslunni fjallar hann einnig um tengsl Ísraels við vesturlönd og nefnir nýlegar fregnir um væntanleg kaup Bretlands á hernaðartækni frá Ísrael fyrir um tvo milljarða punda, sem samsvarar rúmlega 320 milljörðum íslenskra króna. „Vesturlönd hafa ekki beitt neinum refsiaðgerðum af neinu tagi gegn Ísrael þó að það hafi framið þjóðarmorð og sé enn að fremja þjóðarmorð af fullum þunga,“ skrifar hann.
Hann bendir á að Bandaríkin hafi hins vegar gripið til viðskiptaþvingana gegn dómurum og saksóknurum Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) fyrir að hyggjast sækja leiðtoga Ísraels til saka.
„Hryllingnum verður að linna en við ætlum ekki að gera neitt sem gæti mögulega haft áhrif,“ segir Ingólfur að lokum.
Komment