
Forstjóri Meta, Mark Zuckerberg, vinnur nú hörðum höndum að því að mynda teymi gervigreindarsérfræðinga.
Samkvæmt heimildum Bloomberg hefur Zuckerberg, sem er stofnandi Facebook, fundað undanfarnar vikur með miklum fjölda sérfræðinga og er Zuckerberg sagður stefna á að Meta taki fram úr öðrum tæknifyrirtækjum er kemur að þróun almennrar gervigreindar (e. artificial general intelligence, AGI), er felur í sér þá hugsun að vélar geti unnið ýmiskonar verkefni jafnvel eða betur en fólk.
Segir í frétt Bloomberg að Zuckerberg stefni hraðbyri á að ráða um það bil fimmtíu manns í nýja „ofurgreindar“ rannsóknarteymi sitt. Samhliða þessu ætlar Zuckerberg að fjárfesta milljörðum dala í fyrirtækið Scale AI.
Komment