1
Innlent

„Látum vita hvaða myrkaverk er verið að fremja af bæjaryfirvöldum í Hafnarfirði“

2
Menning

„Í skýjunum eftir frábærar fréttir“

3
Innlent

Leit að Sig­ríði Jó­hanns­dótt­ur frestað

4
Innlent

Selma valin fram yfir Höllu Maríu og Veru Sólveigu

5
Innlent

Sigfús kærir þingmann fyrir hatursorðræðu

6
Innlent

Lögreglan lýsir eftir Sigríði

7
Innlent

„Stolni“ matarvagninn settur á uppboð

8
Fólk

Landsliðskona selur huggulegt raðhús í Garðabæ

9
Innlent

Mikið slegist í miðbænum og maður ók á byggingu

10
Landið

Tvö kynferðisbrotamál til rannsóknar á Akureyri

Til baka

Yfirlýsing kennara og starfsfólks Kvikmyndaskóla Íslands

kvikmyndaskóli íslands
Kvikmyndaskóli Íslands

Það ætti flestum að vera ljóst eftir undanfarnar vikur að við, kennarar og starfsfólk Kvikmyndaskóla Íslands erum tilbúin til að leggja mikið á okkur til að verja hag okkar nemenda og um leið verja þá miklu fagmennsku og 30 ára reynslu sem Kvikmyndaskóli Íslands býr yfir. Það er samdóma mat okkar að sú leið sem barna- og menningarmálaráðuneytið hefur nú kynnt, sé ekki bara illa ígrunduð, heldur endurspegli mikið þekkingarleysi á námi í kvikmyndagerð og beri hag nemenda okkar á engan hátt fyrir brjósti. 

Þessi svokallaða lausn barna-og menntamálaráðuneytisins er engin lausn, heldur að okkar mati hrein valdníðsla. Það er erfitt að sjá hvað liggur að baki eða hvert markmið ráðuneytisins er. 

Ráðuneytið ætlar núverandi nemendum Kvikmyndaskólans að ljúka yfirstandandi misseri í deildum Tækniskóla Íslands, sem eiga fátt skylt við nám í kvikmyndagerð. Tækniskólanum er svo ætlað að útfæra sitt eigið kvikmyndanám, sem er vitað mál að tekur langan tíma.  

Það er algjörlega litið framhjá sérstöðu kvikmyndanáms og margra ára viðræðum og vinnu Kvikmyndaskólans og yfirvalda um að færa nám skólans á háskólastig, að ekki sé talað um allan þann kostnað sem ríkisvaldið hefur sett í þá vinnu. Tækniskólinn starfar á framhaldsskólastigi.

Við minnum á að Kvikmyndaskóli Íslands hefur útskrifað yfir 600 hundruð nemendur úr sérhæfðu námi í kvikmyndagerð. Kannanir hafa sýnt að meirihluti þeirra nemenda starfar alfarið við kvikmyndagerð að námi loknu og fjölmargir því til viðbótar starfa í atvinnugreinum sem grundvallast á sérþekkingu þeirra úr kvikmyndanáminu við skólann.

Námskrá skólans, uppbygging sérdeildanna og skipulag samstarfs þeirra í milli hefur þróast á löngum tíma af fagmennsku sem komið hefur Kvikmyndaskólanum á lista með sterkum erlendum kvikmyndaháskólum eftir alþjóðlegar úttektir og það þrátt fyrir að skólinn hafi ekki enn fengið að starfa á háskólastigi. 

Skólinn hefur haft á að skipa mörgu af okkar hæfasta kvikmyndagerðafólki í hópi kennara og stundakennara. Tengingin við íslenskan kvikmyndaiðnað er sterk og það hefur sýnt sig að þörfin fyrir útskrifaða nemendur með þá fagþekkingu sem skólinn veitir er mikil, svo þess að hægt sé að manna íslensk og erlend verkefni. Þá má minna á að i hópi útskrifaðra nemenda eru handhafar fjölda Edduverðlauna, Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs og tilnefningar til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna svo það sé nefnt.

Það er okkar einlæga von að ekki verði farið í þá vegferð sem barna- og menntamálaráðuneytið hefur boðað í dag.

Rektor, starfsfólk og kennarar

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Styrkja Mannlíf

Má bjóða þér að styrkja starfsemi Mannlífs með mánaðarlegu framlagi?


Komment


Sigríður 2
Innlent

Leitin að Sigríði hefur ekki borið árangur

Lögreglan óskar eftir aðstoð almennings
Stóll á safni
Myndband
Heimur

Safn leitar að tveimur klaufskum ferðamönnum

Súkkulaði
Peningar

Súkkulaði hækkar enn í verði

Edition hótel
Innlent

Harmleikurinn við höfnina: Franska sendiráðið neitar að tjá sig um málið

Alma Möller
Innlent

Tryggja þjónustu við konur með endómetríósu

Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA
Sport

„Ég þakka fyrir samstarfið“

Raforka
Peningar

Dreifi­kostnaður heim­ila hækkað um 14%

Kolaportið framtíðarsýn
Innlent

Markmiðið að reka almenningsmarkað í húsnæðinu

matarvagn páll hafþór
Innlent

„Stolni“ matarvagninn settur á uppboð

Armand Duplantis stangarstökk
Sport

Setti enn eitt heimsmetið í stangarstökki

Samstöðufundur Ísland þvert á flokka
Innlent

Sigfús kærir þingmann fyrir hatursorðræðu

Veðurstofan
Innlent

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Menning

Feneyjar frumsýning_Kjartan Sveinsson, Heather Millard, Ingvar Sigurðsson, Edda Arnljótsdóttir, Rúnar Rúnarsson, Claudia Hausfeld
Menning

„Í skýjunum eftir frábærar fréttir“

Íslenska stuttmyndin O (Hringur) hlaut um helgina DANZANTE verðlaunin
Svala Björgvinsdóttir 3
Menning

Svala gæfi allt til losna við feimnina

Birna Pétursdóttir
Myndband
Menning

Birna flutti magnþrungna ræðu á Grímunni

árni már viðarsson
Menning

DÝRIÐ og Árni Már í einstöku samstarfi

Jólatré Sumar
Menning

Bestu jólalögin til að hlusta á um sumar

Loka auglýsingu