
Sindri hefur unnið til verðlauna fyrir störf sínaHefur tekið ákvörðun um að fara sig um set.
Verðlaunakokkurinn Sindri Guðbrandur Sigurðsson hefur tekið þá ákvörðun að selja íbúð sína í Seljahverfinu en hann býr þar með Maríu Dögg Elvarsdóttur.
Sindri er einn af þekktustu kokkum landsins eftir að hafa starfað á Héðinn Kitchen & Bar og veitingastaðnum Silfru.
Parið vill fá 59.900.000 króna fyrir íbúðina sem er gjöf en ekki gjald fyrir slíka eign, að mati sumra.
Eignin er skráð 74,4 m2 að stærð en er í raun stærri þar sem sérgeymsla íbúðar er ekki tilgreind í birtri stærð hennar. Íbúðin er vel skipulögð og skiptist í anddyri, borð- og setustofu, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og þvottahús í sér rými innan íbúðar. Frá stofu og úr hjónaherbergi er útgengt á stórar suður svalir eignar.








Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Komment