
Söngkonan þekkta Védís Hervör Árnadóttir hefur verið ráðin stjórnandi nýrrar skrifstofu umbóta og þróunar hjá Kópavogsbæ en greint er frá þessu í tilkynningu frá bænum.
„Það er mikill heiður að fá að leiða nýja skrifstofu umbóta og þróunar með öflugu teymi. Hún verður vettvangur framsækinna lausna með áherslu á stafræna umbreytingu, gagnadrifna markaðssetningu og iðandi menningarlíf. Með einföldun ferla og nýtingu samlegðaráhrifa má auka skilvirkni og þjónustu og þannig standa vörð um sterka stöðu Kópavogs með umbótum sem skila sér í auknum lífsgæðum íbúa,“ sagði Védís um nýja starfið.
„Skrifstofa umbóta og þróunar mun spila lykilhlutverk í framþróun Kópavogsbæjar. Við ætlum að stíga markviss skref í að efla þjónustu við íbúa með aukinni stafrænni þjónustu. Védís á að baki farsæla stjórnenda- og rekstrarreynslu. Það er mikill fengur að fá svo öflugan stjórnanda með ferska sýn, en það er einmitt það sem ný skrifstofa þarfnast“ sagði Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs.
Védís var valin úr hópi 23 umsækjenda en hún starfaði sem forstöðumaður miðlunarsviðs í stjórnendateymi Samtaka atvinnulífsins frá árinu 2020. Samkvæmt tilkynningunni er Védís með Executive MBA meistaragráðu í stjórnun, stefnumótun og rekstri frá Háskólanum í Reykjavík og BA gráðu í mannfræði með áherslu á atferlishagfræði frá Háskóla Íslands.
Komment