
Tveir gistu fangagleymsu lögregluMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Shutterstock
Í dagbók lögreglu frá því í gær og nótt er greint frá því að fjórir ökumenn hafi verið stöðvaðir í akstri, grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Þá voru tveir ökumenn stöðvaðir vegna gruns um of hraðan akstur.
Einn var handtekinn fyrir að ræna úr verslun en ekki var hægt að ræða við hann vegna ölvunar og var hann því vistaður í fangaklefa.
Tilkynnt var um slagsmál á skemmtistað. Slagsmálin höfðu verið leyst upp áður en lögregla kom á vettvang og enginn var slasaður eftir þau.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Komment