
Milt í veðriFínt veður til að viðra fólk og hunda
Mynd: Svanur Már Snorrason.
Fremur lítil lægð nálgast landið úr suðvestri, en það er samkvæmt veðurspá Veðurstofu Íslands, og segir hún einnig að í dag verði fremur hæg suðlæg átt, skýjað verður víða og stöku skúrir, einkum síðdegis.
Um kvöldið kemur úrkomusvæði frá áðurnefndri lægðinni inn á sunnanvert landið. Heldur svo til norðurs og þá bætir víða í úrkomu.
Á morgun er áfram útlit fyrir fremur hægan vind. Víða skýjað með köflum og úrkomulítið, en annað kvöld gengur í suðaustan 5-10 m/s vestast á landinu með dálítilli vætu.
Hiti yfirleitt á bilinu 7 til 15 stig, verður mildast austantil.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Komment