
Unnar Stefánsson, fyrrverandi ritstjóri, er fallinn frá. Hann var 91 árs gamall en mbl.is greindi fá andláti hans.
Unnar fæddist í Neskaupstað árið 1934 en var alinn upp í Hveragerði. Hann útskrifaðist úr Menntaskólanum að Laugarvatni árið 1954 en það var fyrsti útskriftarárgangur skólans. Hann lauk síðar viðskiptafræðipróf frá Háskóla Íslands.
Unnar starfaði hjá Alþýðublaðinu og Sambandi íslenska sveitarfélaga. Hann var deildar Lánasjóðs sveitarfélaga. Þá ritstýrði hann Sveitarstjórnarmálum frá 1968 til 2004 en það var tímarit á vegum sambandsins.
Hann var þátttakandi í stjórnmálum og kom inn á þing sem varaþingmaður fyrir Alþýðuflokkinn nokkrum sinnum og tók meðal annars sæti á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Þá var hann sundáhugamaður mikill og var um tíma varaformaður Sundsambands Íslands.
Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn.
Komment