
Lögreglan í Columbus birti búmyndavélarmyndband í vikunni sem sýnir skotárás lögreglu þann 11. júní við sundlaugina og samfélagsmiðstöðina í Lincoln Park
Atvikið hófst með því að lögreglukona bregst við byssuskotum sem hún heyrði á meðan hún er í eftirlitsferð nærri miðstöðinni.
Hún heyrist segja í myndbandinu fullorðnum og börnum við sundlaugina að leita skjóls og hleypur síðan til að rannsaka skothvellina, á sama tíma og hún tilkynnir skothvellina til yfirmanna sinna.
Í myndbandi úr búkmyndavél annars lögreglumanns sést hann koma hjólandi að bílastæði við samfélagsmiðstöðina við sundlaugina þar sem hann sér þrjá unglinga sem passa við lýsingu vitnis.
Lögreglumaðurinn skipaði unglingunum að setja hendur upp í loft og dró í kjölfarið upp byssu sína. Einn 16 ára unglingur hleypur þá burtu en hinir tveir verða eftir. Annar þeirra sem varð eftir var svo skotinn þrívegis fyrir fylgja ekki fyrirmælum lögreglunnar að leggjast á jörðina.
Hann er sagður hafa reynt að fela skammbyssu undir jeppa sem var á bílastæðinu.
Lögreglan handtók einnig 15 ára dreng sem flúði af bílastæðinu og fann stolna byssu sem hann reyndi að losa sig við nálægt sundlauginni.
Unglingarnir tveir hafa báðir verið ákærðir fyrir ýmsa vopnatengda glæpi. Sá þriðji var hvorki handtekinn né ákærður.
Komment