
Að sögn Embættis landlæknis, hafa, það sem af er þessu ári, tveir heilbrigðisstarfsmenn verið sviptir starfsleyfi, en þetta kemur fram í tilkynningu á vef embættisins, og þar er einnig fjallað um sviptingar starfsleyfa á árunum 2016-2024.
Segir þar að átta hafi alls verið sviptir slíku leyfi í fyrra - einn aðili árið 2023, þrír árið 2022 og fimm aðilar árið 2021.
Í tilkynningunni segir einnig að ef eingöngu sé litið til ársins 2024 og þess sem liðið er af árinu 2025, þá er hér um að ræða einstaklinga í sex heilbrigðisstéttum.
„Algengasta ástæða sviptingar starfsleyfis á þessu tímabili er lyfjastuldur úr birgðum vinnustaðar. Aðrar ástæður eru óheimilar uppflettingar í sjúkraskrá, útgáfa rangra reikninga til Sjúkratrygginga, rekstur heilbrigðisþjónustu án tilskilinna heimilda, skjalafals og að heilbrigðisstarfsmaður sé ekki talinn hæfur til að gegna starfi sínu, t.d. vegna vanrækslu í starfi, áfengisnotkunar eða veikinda,“ segir í unefndri tilkynningu.
Fram er tekið að svipting starfsleyfis sé alvarlegasta úrræði sem landlæknir geti gripið til gagnvart heilbrigðisstarfsmanni. Sviptingu er ekki beitt nema ljóst þyki að önnur úrræði eigi hreinlega ekki við.
Heilbrigðisstarfsmaður sem er sviptur starfsleyfi hefur þrjá mánuði til að kæra ákvörðunina til heilbrigðisráðuneytis, en algengasta ástæða sviptingar starfsleyfis á þessu tímabili er lyfjastuldur úr birgðum vinnustaðar.
„Heilbrigðisstarfsmaður sem sviptur hefur verið starfsleyfi getur sótt um endurveitingu leyfisins geti hann sýnt fram á að hann uppfylli skilyrði laga fyrir endurveitingu og að þær ástæður sem leiddu til sviptingar eigi ekki lengur við. Embætti landlæknis birtir á heimasíðu sinni starfsleyfaskrá með nöfnum allra heilbrigðisstarfsmanna sem hafa starfsleyfi landlæknis,“ segir í tilkynningu embættisins.
Komment