Hörmulegur atburður átti sér stað á hóteli í miðbænum í morgun
Tveir erlendir ferðamenn fundust látnir á hóteli í miðborginni á áttunda tímanum í morgun. Þriðji aðilinn, einnig erlendur ferðamaður, var einnig á vettvangi og var hann með áverka.
Viðkomandi var færður undir læknishendur, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni en tilkynning um málið barst lögreglunni kl. 7.14.

Enn eru málsatvik afar óljós, enda rannsóknin á frumstigi, segir í tilkynningunni og einnig að ekki sé hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.
Mannlíf var á svæðinu og ræddi við nokkra enskumælandi erlenda gesti sem voru að gera sig ferðbúna.
„Ég veit ekkert hvað gerðist, ég svaf hreinlega svo fast“ sagði kona ein sem hvorki vildi myndbirtingu né koma undir nafni. Og hún vissi ekki meira en svo að hún spurði blaðamann hvað hefði eiginlega gerst.
Fleiri komu og ræddu málin við blaðamann Mannlífs og svo virtist sem hreinlega enginn af þessum ferðamönnum hafi orðið vart við eitt né neitt sem teljandi tæki að segja frá.

„Það eina sem ég veit er að lögreglan var hérna, og okkur var sagt að halda okkur inni á herbergjum okkar þangað til annað kæmi ljós,“ sagði karlmaður á fimmtugsaldri sem sagði dvölina á hótelinu hafa verið ánægjulega sem og ferðalag sitt um landið, en honum þótti leitt að heyra að slæmir hlutir hefðu gerst á hótelinu á meðan hann steinsvaf:
„Mér bregður bara við að heyra svona frá þér að alvarlegt atvik hafi átt sér stað á hæðinni sem ég dvaldi á, mér er verulega brugðið,“ sagði hann að lokum og skellti sér upp í hvíta Teslu og var förinni heitið í Leifsstöð.
Það var sérkennilegt andrúmsloft við hótelið og starfsmaður reyndu að skipta sér af störfum blaðamanns en það stóð ekki yfir lengi og það skal tekið fram að starfsmaðurinn var kurteis þótt afskiptasamur væri.
Komment