
Dóra Magnúsdóttir er samskiptastjóri hjá Hafrannsóknastofnun og hún hrósar sundlaugavörðum á Egilsstöðum fyrir viðbrögð þeirra er faðir hafði misst frá sér barn í vatnsrennibrautinni.
Hún vill hrósa sundlaugarvörðunum „í lauginni á Egilsstöðum í gær“ og segir frá því að „tvær ungar konur voru að afgreiða, tvíburar og var önnur þeirra alltaf með augun fixeruð á vaktskjáum laugarinnar á meðan hin afgreiddi eða sýslaði.“
Dóra slakaði svo á og „fór svo í laugina, sat í pottinum þegar þær komu báðar út á núll einni þegar faðir hafði misst frá sér barn í vatnsrennibrautinni, sem gat sér ekki björg veitt í smástund, og önnur búin að hoppa oní og rífa barnið upp á áður en karluglan (faðirinn) kom niður úr rennibrautinni.“
Dóra segist hafa orðið „alveg sundlaugavarðastarstruck“ og segir að það ætti einfaldlega að „fjölfalda þessar stelpur og setja þær í allar laugar landsins.“
Mannlíf hafði samband við sundlaugina á Egilsstöðum og ræddi við annan tvíburann sem kom við sögu, sem staðfesti að atburðurinn hefði átt sér stað.
Komment