
Árásir Ísraelshers á Gasa hafa skelfileg áhrif á barnshafandi konur og mæður með ung börn, en talið er að um 50.000 þeirra séu í alvarlegri hættu vegna skorts á matvælum og nauðsynlegum lyfjum, samkvæmt upplýsingum frá sjúkrahúsi í miðhluta Gasa.
Khalil al-Daqran, talsmaður Al-Aqsa Martyrs sjúkrahússins í Deir el-Balah, segir að fósturlát hafi sexfaldast frá upphafi stríðsins, auk þess sem fyrirburafæðingum hafi fjölgað verulega, að því er palestínska fréttastofan Wafa greinir frá.
Þetta hefur sett mikinn þrýsting á nýburadeildir sjúkrahúsa á Gasa, sem nú eru að kikna undan álaginu.
Al-Daqran segir að árásir Ísraela á heilbrigðiskerfið hafi nánast lamað starfsemi þess og valdið gríðarlegum afleiðingum fyrir sjúklinga á svæðinu.
Yfir 23 sjúkrahús hafa verið tekin úr notkun, en þau fáu sem enn starfa eru aðeins að hluta til virk vegna mikils skorts á lyfjum og eldsneyti.
Afleiðingarnar eru meðal annars þær að meira en 12.000 krabbameinssjúklingar fá enga meðferð og um fimm þeirra látast á dag. Einnig eru nýrnasjúklingar að deyja vegna skorts á lífsnauðsynlegri meðferð.
Komment