Donald Trump hóf ferð sína á NATO-leiðtogafundinn með skammaryrðum og reiði, en pirringurinn hvarf eins og dögg fyrir sólu. Nokkrum klukkustundum síðar var forsetinn orðinn allt annar maður.
Frá konunglegri gistingu með morgunverði til opinberrar lofræðu, var allt gert til að halda Trump í góðu skapi – af ótta við að hann myndi sprengja í loft upp vandlega skipulagða sýningu á einingu innan NATO.
Og það borgaði sig fyrir leiðtogana.
Það sem gladdi Trump mest, mann sem dregst að dýrð og tign, var að hollenski konungurinn, Willem-Alexander, lagði rauða dregilinn – bókstaflega – og bauð honum í veglega kvöldmáltíð ásamt því að bjóða honum að gista með litlum fyrirvara.
Trump ljómaði þegar hann heilsaði konunginum, drottningunni og prinsessunni, og lýsti þeim síðar sem „fallegu og stórbrotnu fólki“.
„Beint úr kvikmyndum,“ sagði hann um hollensku konungsfjölskylduna. „Morgunverðurinn okkar var frábær!“
Sýnilega hress eftir konunglegan morgunverð hrósaði hann „fallega Hollandi“ í hástert á leið sinni í forsetabílnum „The Beast“ á fundarstaðinn á miðvikudag.
„Ég vil þakka þeim fyrir þessa konunglegu meðhöndlun“
„Ég vil þakka þeim fyrir þessa konunglegu meðhöndlun – gæti varla verið betra,“ sagði hann upp yfir sig af ánægju. Sjálfur hefur Trump vakið mótmælaöldu í heimalandinu undir slagorðinu „No Kings“, eftir að hafa birt mynd af sér sem konungi.
„Og þetta er svo fallegt land... ég sá heimsins fallegustu tré – ég vil reyndar taka nokkur með mér heim.“
Skapferli forsetans speglaðist líka í breyttum pólitískum tón.
Þótt hann hefði varpað sprengju inn í umræðuna með því að draga í efa sameiginlega varnarstefnu NATO á leið sinni yfir Atlantshafið daginn áður, var hann nú brosandi og vingjarnlegur.
Við komu hans tóku gestgjafar hans á móti honum með lofræðum.
„Þú ert maður styrks, og líka maður friðar,“ sagði Mark Rutte, aðalritari NATO og oft kallaður „Trump-hvíslari“.
„Ástarbréf“ frá NATÓ til Trumps
„Algjörlega ótrúlegt“: Aðalritari NATO, Mark Rutte, sendi á þriðjudag skilaboð til Donalds Trump, skreytt lofi og hástöfum, áður en leiðtogafundur NATO hófst – sem sýnir hversu langt hann gengur til að hrósa þessum óútreiknanlega forseta Bandaríkjanna. Trump birti skilaboðin þegar í stað á Truth Social.
„Til hamingju og þakkir fyrir afgerandi aðgerðir í Íran – þetta var algjörlega ótrúlegt og eitthvað sem enginn annar þorði að gera. Þetta gerir okkur öruggari,“ skrifaði Rutte í skilaboðum sem Trump deildi og sem skrifstofa Rutte staðfesti að væru raunveruleg.
Með því að tileinka sér stíl Trumps, sneri Rutte sér svo að kjarnamáli leiðtogafundarins – loforðum um útgjöld – og gaf Trump heiðurinn af því að hafa fengið öll ríkin með sér í lið.
„Evrópa ætlar að borga MIKIÐ, eins og hún á að gera – og þetta verður þinn sigur,“ skrifaði Rutte.
„Þú ert að fljúga inn í enn einn stórsigurinn í Haag í kvöld. Þetta var ekki auðvelt, en við náðum að fá öll ríkin til að samþykkja fimm prósent,“ bætti hann við.
Að halda Trump inni í NATO hefur verið algjört forgangsatriði hjá Rutte, þar sem forseti Bandaríkjanna sneri aftur til valda með hótanir um að vernda ekki bandamenn sem borgi ekki sanngjarnan hluta.
Í því skyni eru NATO-ríkin nú tilbúin að samþykkja skuldbindingu um að verja fimm prósentum af vergri landsframleiðslu til varnarmála – þrátt fyrir seint nefnda gagnrýni, sérstaklega frá Spáni.
Rutte hélt áfram að hrósa Trump og notaði hástafi líkt og forsetinn sjálfur, með orðum á borð við: „Eitthvað sem ENGINN forseti Bandaríkjanna hefur tekist að ná fram í áratugi.“
Að lokum, með vísun í ást Trumps á tign og konunglegum siðum, lauk Rutte skilaboðunum á: „Sjáumst í kvöld í kvöldverði Hans Hátignar.“
Hollenski konungurinn, Willem-Alexander, hélt kvöldverð fyrir leiðtoga heimsins og bauð Trump að gista í höll sinni – nokkuð sem forsetinn þáði með þökkum.
Varðandi skammaryrðin sem Trump lét falla daginn áður, þar sem hann gagnrýndi Íran og Ísrael fyrir að brjóta vopnahlésamkomulag, lét Rutte það ekki á sig fá.
„Stundum þarf pabbi að nota sterk orð,“ sagði hann.
„Þinn sigur“
Trump sem mætti brosandi á leiðtogafundinn var varla þekkjandi frá reiða forsetanum sem yfirgaf Hvíta húsið innan við sólarhring fyrr.
Leiðtogar sem söfnuðust saman í Haag fylgdust áhyggjufullir með Trump skammast út í Ísrael og Íran af ótta við að vopnahlé sem hann hafði nýlega kynnt myndi falla um sjálft sig.
Jafnvel starfsfólk Hvíta hússins var hissa þegar Trump sagði að ríkin tvö „viti ekki rassgat hvað þau eru að gera“ – líklega í fyrsta sinn sem sitjandi forseti bölvar þannig opinberlega.
Frá forsetaflugvélinni Air Force One sendi hinn 79 ára gamli forseti út yfir tugi reiðra skilaboða á samfélagsmiðlum um allt frá pólitískum andstæðingum til NATO-útgjalda.
Hann virtist ekki mikið hressari þegar hann ræddi við fréttamenn um borð í flugvélinni og sagði að „fjöldi skilgreininga“ væri til á kjarnagrein NATO, 5. grein sáttmálans um sameiginlega varnarviðbrögð.
En ein skilaboð virtust hafa náð hjarta hans.
Forsetinn endurbirti persónuleg skilaboð frá Rutte þar sem hann sagði: „Evrópa mun borga MIKIГ og bætti við: „Þetta verður þinn sigur.“
Þegar Trump steig út úr vélinni á Schiphol-flugvellinum í Amsterdam að kvöldi þriðjudags, virtist hann strax í betra skapi. Hann var með hvíta derhúfu merkt „USA“ og brosti til myndavéla.

„Stórkostlegur árangur“
Gestgjafar Trumps fylgdu síðan þaulreyndri aðferð sem Bretar hafa líka beitt áður – að höfða til lotningar hans gagnvart Elísabetu drottningu.
Hollenski konungurinn bauð Trump í kvöldverð á konungshöllinni Huis ten Bosch, sem stendur í skógi rétt fyrir utan Haag, í glæsilegum barokk-sal með veggmyndum og gylltum skreytingum.
Trump, sem sjálfur hefur verið í fasteignabransanum og hefur fyllt Hvíta húsið af glamúr, benti upp í loftið af hrifningu meðan hann spjallaði við konunginn.
Næsta morgun mætti Trump brosandi og gaf þumalinn upp þegar hann snæddi morgunverð með konungshjónunum.
Fyrir mann sem hefur tilhneigingu til að kollvarpa alþjóðafundum og yfirgefa þá fyrir tímann, virtist hann nú kominn í gott skap þegar hann mætti á sjálfan fundinn.
Í fyrra hafði Trump jafnvel sagt að hann myndi segja Rússlandi að „gera það sem þeim fjandans sýnist“ við NATO-ríki sem borguðu ekki sinn hlut – en allt slíkt virtist gleymt nú.
„Við stöndum með þeim til fulls,“ sagði hann og vísaði til þess að margir leiðtoganna væru vinir hans.
„Ég held að leiðtogafundurinn hafi verið frábær. Þetta var stórkostlegur árangur,“ sagði Trump við Dick Schoof, forsætisráðherra Hollands.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagðist eftir fundinn í dag hafa náð góðum tengslum við Trump. Hún reyndi að höfða til hans með því að hvetja hann til að þrýsta á vopnahlé á Gasa. „Ég hvatti Bandaríkjaforseta, sem sat nú bara beint á móti mér og horfði í augun á mér, til þess að koma á vopnahléi á Gasa, þar sem að hann hefði áður sýnt að hann getur haft gífurleg áhrif á slíka samninga og að vopnahlé náist.“
Þrátt fyrir orð um að öll bandalagsríki NATO myndu greiða 5% af landsframleiðslu sinni til varnar- og öryggismála kveðst Kristrún hafa náð undanþágu fyrir Ísland, sem verji aðeins 1,5% þjóðarframleiðslu til öryggismála í víðara samhengi frá og með árinu 2035.
Komment