
Leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson hefur í mörg ár verið einn af þekktustu leikurum Íslands en kom fram á sjónarsviðið seint á síðustu öld þegar hann lék í Bugsy Malone. Síðan þá hefur hann leikið í fjölda þátta og kvikmynda og hafa margar af þeim slegið í gegn.
Þorvaldur er nýjasti gestur Sölva Tryggvasonar í hlaðvarpi hans og ræða þeir meðal annars feril Þorvaldar, náttúruna og núvitund. Í þættinum segir Þorvaldur einni frá því sem hann hefur mestar áhyggjur af.
„Það sem ég hef mestar áhyggjur af er að við séum að missa frjálsa hugsun á ákveðinn hátt. Með öllum þessum algóriþmum og öðru sem hugsar fyrir okkur. Að þessar græjur séu að taka ákvarðanir fyrir okkur og að það sé búið að hugsa öll næstu skref í okkar lífi. Það hræðir mig svolítið. En á sama tíma er ég líka að reyna að vera bjartsýnn með þetta og sjá tækifærin og á endanum skila boð og bönn engu. En í mínum huga hefur aldrei verið mikilvægara að aftengja sig tækjunum og ná alvöru rými í heilann og hugsanirnar. Það hefur breytt lífi mínu að fara út að hlaupa og vera einn með hugsunum mínum mjög reglulega. Tími með sjálfum okkur þar sem við förum í gegnum langar hugsana-arkir hjálpa okkur að ná dýpt. Hjá mér gerist það þegar ég hleyp og ekki síst ef ég kemst út í náttúru þar sem ég helst sé engar byggingar. Allt í hausnum á mér verður skýrara við það og striginn verður hreinn.“
Komment